Innlent

Hvíldartímareglur að ganga að flutningabílstjórastéttinni dauðri

Aksturs- og hvíldartímareglur Evrópusambandsins eru að gagna af stétt flutningabílstjóra dauðri, að mati flutningahóps heildarsamtaka atvinnulífsins í Evrópu. Sömu reglur gilda hér á landi.

Þetta kom fram á fundi hópsins í Brussel fyrir helgina en fulltrúar Samtaka verslunar og þjónustu á Íslandi sátu fundinn. Þar kom meðal annars fram að kjarni flutningabílstjóra er að eldast því nýliðar festast ekki í greininni. Hópur óvanra manna í greininni fer því ört stækkandi með tilsvarandi slysahættu en reglurnar áttu þvert á móti að stuðla að auknu öryggi í umferðinni.

Fram kom á fundinum að sum flutningafyrirtæki næðu ekki lengur að manna alla bíla sína sem væri bagalegt þar sem flutningagreinin væri í öruggum vexti.

Þessar sömu reglur gilda hér á landi og eftir því sem fréttastofan kemst næst, er sami vandinn að verða hér og á meginlandinu. Meðal hugmynda sem komu fram á fundinum var að bæta ímynd flutningabílstjóranna, til dæmis með einhvers konar skóla sem veitti þeim réttindi og stöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×