Sögulegar sættir á íslenskum bókamarkaði 1. september 2007 08:15 Halldór Guðmundsson „
Já, þú mátt alveg kalla það sögulegar sættir. Ég myndi kannski ekki hafa orðið „sögulegt“ um þetta en þetta er merkilegt og vonandi farsælt skref,“ segir Halldór Guðmundsson, væntanlegur stjórnarformaður Forlagsins, nýrrar bókaútgáfu. Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi undirritaði í gær viljayfirlýsingu um nýtt útgáfufyrirtæki með gömlum félögum, þeim Árna Einarssyni og Halldóri Guðmundssyni. Forlagið yrði sameinuð bókaútgáfa Máls og menningar, JPV-útgáfu, Vöku-Helgafells og annarra forlaga, sem áður voru undir Eddu-miðlun, utan Almenna bókafélagsins. Jóhann tengdist Máli og menningu, eftir að hún keypti eldra Forlag hans árið 1990. Jóhann yfirgaf seinna fyrirtækið við litla hrifningu Menningarmanna. Jóhann Páll Valdimarsson Halldór segir að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan og löngu gróið um heilt. Hann hafi til að mynda gefið út tvær bækur hjá JPV í millitíðinni. Mál og menning vinnur nú að því að kaupa bókaútgáfu Eddu og kæmi Jóhann Páll inn í kaupin til helminga, að því loknu. Undanfarin ár hafa verið erfið í bókaútgáfu, segir í tilkynningu vegna þessa, en með nýju félagi verði stefnt að aukinni hagræðingu og nýtingu bókalagers og réttinda. Halldór óttast ekki að verið sé að endurtaka leikinn frá því þegar Edda var stofnuð með sameiningu Máls og menningar og Vöku-Helgafells, en þeirri tilraun lauk nærri gjaldþroti. „Allir aðilar þessa máls hafa í sögu íslensks bókamarkaðar gert ýmis mistök. En við eigum líka flotta og stolta bókaútgáfusögu og við höfum ýmislegt lært.“ Ef af verður, sest Árni Einarsson, núverandi forstjóri Eddu, í stjórn hins nýja félags. Jóhann Páll tekur við stöðu útgefanda og sonur hans, Egill Örn, verður framkvæmdastjóri Forlagsins. Halldór fer með stjórnarformennsku, sem fyrr segir.
Mest lesið Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Erlent Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Innlent Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Erlent Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Erlent Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Innlent Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Innlent Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Innlent Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Innlent Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Innlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Fleiri fréttir Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Sjá meira