Beckham-hjónin nakin 13. júlí 2007 10:15 David og Victoria gefa forsmekkinn að því sem koma skal á forsíðu tímaritsins. Inni í blaðinu má sjá myndir af skötuhjúunum nánast án fata.
Eitt af því skemmtilegasta sem hjónakornin David og Victoria Beckham gera er að læsa hurðunum á heimili sínu á kvöldin til að geta valsað um í friði án fata. Þetta kemur fram í viðtali við fótboltamanninn og kryddpíuna við tískutímaritið W í Bandaríkjunum sem ritstjórar tímaritsins segja að sé „hið opinskáasta sem hjónin hafa veitt til þessa“. Ensku hjónin, sem eru óðum að koma sér fyrir á sínu nýja heimili í Los Angeles, eru sögð mjög opinská í viðtalinu og lofa ritstjórarnir að margt nýtt muni koma þar fram. Að auki sátu hjónin fyrir í blaðinu í stellingum sem sagðar eru „erótískar“ og munu myndir birtast af þeim skötuhjúm hálfnöktum í faðmlögum. „Ég held að í fyrsta sinn muni fólk virkilega sjá hvernig manneskju ég hef að geyma,“ segir Victoria sjálf, en greinilegt er að hún er að leggja sig alla fram við að fá athygli í Bandaríkjunum, til að eiga meiri möguleika á að skapa sér feril þar í landi. „Ég held að margir telji mig vera óánægða kú sem brosi aldrei. En sannleikurinn gæti ekki verið fjær þeirri ímynd. Ég er alltaf brosandi heima og ég ætla að reyna að brosa sem mest fyrir Ameríku,“ sagði Victoria enn fremur. Á djörfustu myndinni sem sjá má í blaðinu situr David klofvega á dýnu í dimmu hótelherbergi og fjarlægir belti af Victoriu, sem ku vera allra síðasta flíkin sem hún ber. Stephen Klein, einn þekktasti ljósmyndari Bandaríkjanna, sá um myndatökuna, en hann vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir erótískar myndir af Madonnu. Í viðtalinu kemur einnig fram að David hefur látið sérsmíða fyrir sig fullkomið heimabíó í villu þeirra hjóna í Beverly Hills sem meðal annars skartar stærsta flatsjónvarpi sem framleitt hefur verið. Flatskjárinn er 260 sentímetrar á lengd, að sjálfsögðu sérsmíðaður og kostaði rúmar sex milljónir króna.
Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Lífið Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Fleiri fréttir Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Sjá meira