Lífið

Beckham-hjónin nakin

David og Victoria gefa forsmekkinn að því sem koma skal á forsíðu tímaritsins. Inni í blaðinu má sjá myndir af skötuhjúunum nánast án fata.
David og Victoria gefa forsmekkinn að því sem koma skal á forsíðu tímaritsins. Inni í blaðinu má sjá myndir af skötuhjúunum nánast án fata.

Eitt af því skemmtilegasta sem hjónakornin David og Victoria Beckham gera er að læsa hurðunum á heimili sínu á kvöldin til að geta valsað um í friði án fata. Þetta kemur fram í viðtali við fótboltamanninn og kryddpíuna við tískutímaritið W í Bandaríkjunum sem ritstjórar tímaritsins segja að sé „hið opinskáasta sem hjónin hafa veitt til þessa“.

Ensku hjónin, sem eru óðum að koma sér fyrir á sínu nýja heimili í Los Angeles, eru sögð mjög opinská í viðtalinu og lofa ritstjórarnir að margt nýtt muni koma þar fram. Að auki sátu hjónin fyrir í blaðinu í stellingum sem sagðar eru „erótískar“ og munu myndir birtast af þeim skötuhjúm hálfnöktum í faðmlögum.

„Ég held að í fyrsta sinn muni fólk virkilega sjá hvernig manneskju ég hef að geyma,“ segir Victoria sjálf, en greinilegt er að hún er að leggja sig alla fram við að fá athygli í Bandaríkjunum, til að eiga meiri möguleika á að skapa sér feril þar í landi. „Ég held að margir telji mig vera óánægða kú sem brosi aldrei. En sannleikurinn gæti ekki verið fjær þeirri ímynd. Ég er alltaf brosandi heima og ég ætla að reyna að brosa sem mest fyrir Ameríku,“ sagði Victoria enn fremur.

Á djörfustu myndinni sem sjá má í blaðinu situr David klofvega á dýnu í dimmu hótelherbergi og fjarlægir belti af Victoriu, sem ku vera allra síðasta flíkin sem hún ber. Stephen Klein, einn þekktasti ljósmyndari Bandaríkjanna, sá um myndatökuna, en hann vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir erótískar myndir af Madonnu.

Í viðtalinu kemur einnig fram að David hefur látið sérsmíða fyrir sig fullkomið heimabíó í villu þeirra hjóna í Beverly Hills sem meðal annars skartar stærsta flatsjónvarpi sem framleitt hefur verið. Flatskjárinn er 260 sentímetrar á lengd, að sjálfsögðu sérsmíðaður og kostaði rúmar sex milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.