Lífið

Kristján stóð sig vel sem vallarþulur

Einn áhorfandinn hafði á orði að Kristján liti út eins og liðsstjóri hjá liði í Formúlu 1 kappakstri. „Ógurleg græja,“ segir Kristján sjálfur um þráðlausa hljóðnemann.
Einn áhorfandinn hafði á orði að Kristján liti út eins og liðsstjóri hjá liði í Formúlu 1 kappakstri. „Ógurleg græja,“ segir Kristján sjálfur um þráðlausa hljóðnemann. MYND/Daníel

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi FL Group og fyrrverandi sjónvarpsmaður, brá sér í hlutverk vallarþular þegar Þróttur og Keflavík mættust í VISA-bikarnum á Valbjarnarvelli í fyrradag og þótti standa sig með afbrigðum vel.

Kristján tók sig afar vel út með þráðlausan míkrófón og valsaði um vallarsvæðið á meðan hann kynnti liðin til leiks og gerði áhorfendum grein fyrir markaskorurum og skiptingum leikmanna.

„Þetta er ógurlega mikil græja og það er náttúrlega alveg eðal að vera með þetta þráðlaust,“ segir Kristján, sem var þó ekki að kynnast vallarþularhlutverkinu í fyrsta sinn því hann var aðalþulur Þróttar þegar liðið var síðast í efstu deild, sumarið 2005. Þá lék liðið heimaleikina á Laugardalsvellinum og segir Kristján það greinilegt að miklar tækniframfarir hafi orðið á tæknibúnaði vallarþula. „Á Laugardalsvellinum var maður lokaður inn í einhverri kompu með forláta hljóðnema. Nú er þetta allt annað,“ segir Kristján og bætir við að hann sé vissulega tilbúinn að taka að sér hlutverkið síðar í sumar, ef þörf er á.

Ásmundur Helgason er venjulega í hlutverki vallarþular hjá Þrótti en vegna forfalla hans hljóp Kristján í skarðið á miðvikudag. Kristján, sem hefur alla tíð verið mikill fótboltaáhugamaður, varð Þróttari í gegnum börnin sín og situr nú í stjórn knattspyrnudeildar félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.