Heldur kjólauppboð á Myspace 12. júlí 2007 09:15 Margrét Erla Maack býr við aðalverslunargötu Brooklyn þar sem ekki er þverfótað fyrir svokölluðum second-hand-verslunum. MYND/Heiða
Margrét Erla Maack ver sumrinu við magadans í New York. Samhliða því gleður hún hjörtu þeirra íslensku stúlkna sem kunna að meta second-hand föt. Hún býður afrakstur verslunarferða sinna upp á myspace. Margrét, sem er magadanskennari í Kramhúsinu, elti uppáhalds magadanskennarann sinn til New York. „Svo á ég mjög góða vini hérna úti og flyt kannski út þegar ég er búin með námið. Ég klára háskólann í febrúar svo þetta er svona síðasta sumarið sem ég hef áður en ég verð fullorðin," sagði Margrét sposk, en hún stundar nám í ensku. Margrét segir ekki þverfótað fyrir second-hand verslunum í Brooklyn. „Ég bý eiginlega á Laugaveginum í Brooklyn, Bedford Avenue. Þetta er svolítið eins og Hvergiland, hér eru allir á sama aldri og ég og allir í notuðum fötum," útskýrði Margrét, sem var fljót að kynna sér framboðið. Margrét kveðst hafa átt í vandræðum með að finna sér notuð föt á Íslandi. „Ég er ekkert feit, en ég hef svona eitthvað aðeins til að hrista í magadansinum," sagði hún og skellti upp úr. Margrét hafði meira upp úr krafsinu í verslunarleiðöngrum úti og telur sig hafa skýringu á því. „Ég held að flestar svona búðir heima kaupi inn frá Evrópu, en hérna er aðeins stærra fólk að gefa fötin sín," sagði hún. Einn kjólanna sem Margrét hefur boðið upp á myspace-síðunni sinni, en undirtektir hafa verið afskaplega góðar að hennar sögn. Uppboðin komu til vegna þess að Margréti „fannst eiginlega bara ósanngjarnt að sitja ein að þessu," að eigin sögn. Miðað við viðbrögðin sem hún hefur fengið virðast fleiri hafa verið í sömu sporum. „Það var ekkert smávegis vel tekið í þetta," sagði Margrét, sem hefur hingað til selt þrettán kjóla og er með tíu uppboð í gangi sem stendur. „Stelpurnar hafa líka verið duglegar að senda mér skilaboð og spyrja hvort ég geti fundið eitthvað í þessari stærð eða þessum lit," sagði Margrét, en bendir þó á að ekki sé hægt að sérpanta. „Ég býð allt upp, þannig að þær sitja ekki einar að þessu. En ég passa að hafa uppboðin aldrei lengur en í þrjá, fjóra daga, svo þetta verði ekki of dýrt," bætti hún við. Hvaða myspace-meðlimur sem er getur boðið í fötin á slóðinni www.myspace.com/brooklynvintage.
Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Fleiri fréttir Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Sjá meira