Divine Brown þakklát Hugh Grant 12. júlí 2007 08:00 Divine Brown er þakklát fyrir að hafa hitt Hugh Grant þennan örlagaríka dag fyrir tólf árum.
Fyrir tólf árum síðan gekk hinn 25 ára gamla Divine Brown út á Sunset Boulevard og stundaði iðju sína sem vændiskona. Þegar hvítur BMW renndi upp við hliðina á henni breyttist líf hennar á örskotsstundu. „Ég heiti Lewis," sagði maður með hafnaboltahúfu og bauð Brown að setjast uppí bílinn sinn. „Þú ert sæt," bætti hann við og þau keyrðu á brott. Framhaldið þekkja sennilega flestir en Divine og breski leikarinn Hugh Grant voru tekin við vafasama iðju í skuggasundi af lögreglunni í Los Angeles. Hugh missti eiginlega allt; í það minnsta unnustu sína Elizabeth Hurley og það tók hann þó nokkur ár að endureisa feril sinn sem á þessum tíma var í miklum blóma eftir velgengni Four Weddings and a Funeral. Niðurlægingin var síðan fullkomnuð þegar News of the World birti mynd af Brown í hinum víðfræga Versace-kjól sem Liz hafði gert heimsfrægan. Sögunni af Divine Brown hefur verið líkt við kvikmyndina Pretty Woman þar sem Richard Gere kolféll fyrir Juliu Roberts. Reyndar hét erótíska kvikmyndin hennar Brown einmitt þessu nafni og þrátt fyrir að skötuhjúin hafi ekki tekið upp langtímasamband þá svífur andi Grant enn yfir lífi Brown. Hugh Grant missti konuna sína og eyddi nokkrum árum í að endurreisa feril sinn. Vændiskonan græddi á tá og fingri, gerði áðurnefnda klámmynd sem byggði á reynslu hennar en hún var rifin út eins og heitar lummur. Og í dag er hún hamingjusöm móðir, moldrík eftir ástarævintýrið með Hugh Grant. Henni voru borgaðar milljónir fyrir að mæta í spjallþætti þar sem hún ræddi um reynslu sína á meðan Hugh Grant mætti til Jay Leno og baðst afsökunar á þessu öllum saman. Enn þann dag í dag er eftirspurnin eftir þjónustu Brown í sjónvarpi mikil og á næstunni kemur út DVD-diskur um líf hennar. Brown er gift plötuútgefanda og býr í vellystingum í Hollywood. En hún hefur ekki gleymt breska sjentilmanninum sem birtist henni eins og riddari á hvítum hesti. „Hugh Grant kom stelpunum mínum í gegnum háskóla og gaf þeim líf sem ég hefði aldrei getað látið mig dreyma um," sagði Divine í samtali við sjónvarpsþáttinn Hollywod Lives sem sýndur var í Bretlandi á dögunum.
Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Lífið Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Fleiri fréttir Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Sjá meira