Arne Aarhus aftur á skjáinn 7. júlí 2007 06:30 Arne Aarhus reynir allt til að vera sem frumlegastur í áhættusportinu. Hér sést hann lenda heill á höldnu eftir svokallað base-stökk í miðborg Parísar.
Nýir þættir um hálfíslenska ofurhugann Arne Aarhus hefja göngu sína á Skjá einum á sunnudag. Framleiðandi þáttarins lofar svakalegri áhættuatriðum en nokkru sinni fyrr. „Núna er Arne að prófa allt hitt í þessu sporti og „base-stökkin“ eru í lágmarki. Hann er að prófa alls kyns áhættusport eins og svifdrekaflug, teygjustökk á framandi stöðum, fallhlíf með mótor, spíttbátaakstur um jökulsár og flugvél í vír,“ segir Steingrímur Dúi Másson framleiðandi en síðastnefnda sportið gengur út á að sitja í flugvél án vængja sem hengd er á uppstrengdan vír. Flugvélin sveiflast síðan í allar áttir á gríðarlegum hraða. „Mörg atriðin eru alveg rosaleg,“ segir Steingrímur. Arne Aarhus varð landsfrægur eftir að hafa komið fram í þáttunum Adrenalín á Skjá einum fyrir sjö árum síðan en í sumar verða alls sýndir fimm þættir af ævintýrum Arne þar sem hann meðal annars heimsækir lönd eins og Nýja-Sjáland, Malasíu, Kuala Lumpur og Taíland. Í síðasta þættinum verður Arne sóttur heim til Bergens í Noregi og þá munu áhorfendur fá að vita hvað ofurhuginn er að gera í dag – hvort hann hyggist halda áfram í leit að adrenalíni um heiminn eða hvort hann leggur fallhlífina á hilluna fyrir fullt og allt. Steingrímur verður leyndardómsfullur þegar lokaþátturinn berst í tal. „Niðurstaðan er forvitnileg en fólk verður bara að bíða eftir lokaþættinum og fá svörin þar.“
Mest lesið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Tíska og hönnun Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Fleiri fréttir Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Sjá meira