Slæmt að Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins 2. apríl 2007 18:30
Forsætisráðherra telur miður að Hafnfirðingar hafi hafnað stækkun álversins í Straumsvík og segir að hagur bæjarfélagsins og íbúanna verði verri fyrir vikið. Sérfræðingar hjá greiningardeild Glitnis segja að líkur á mjúkri lendingu í efnahagslífinu hafi aukist, vegna niðurstöðu kosninganna. Ef Hafnfirðingar hefðu samþykkt stækkun álversins á laugardag, hefðu framkvæmir við stækkunina væntanlega hafist bráðlega. En í þeirri þenslu sem nú ríkir í efnahagslífinu, hefði slík framkvæmdt geta viðhaldið spennu í efnahagslífinu. Jón Bjarki Bentsson hagfræðingur hjá greiningardeild Glitnis, segir að nú þegar ljóst sé að ekkert verði að stækkuninni, minni spennan og vextir og verðbólga muni því lækka fyrr en ella. Þrátt fyrir þessa skoðun Glitnismanna telur forsætisráðherra að áhrif þessarar niðurstöðu séu neikvæðar. "Þetta þýðir að afkoma Hafnarfjarðarbæjar á næstu árum verður ekki eins góð og hún hefði orðið," segir Geir H Haarde forsætisráðherra. Væntanlega þýði þetta líka eitthvað rírari lífskjör hjá þeim sem hefðu fengið vinnu í stækkuðu álveri. "Að sjálfsögðu hefðu menn viljað sjá hér hærri tekjur. Íbúarnir voru hins vegar að taka ákvörðun út frá öllum þeim forsendum sem málið snérist um," segir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði. Tekjurnar hafi verið einn þáttur í málinu, en virða beri þá niðurstöðu sem liggur fyrir. Forsætisráðherra segir að ekki sé hægt að draga þá ályktun af niðurstöðum kosninganna að þar hafi því verið hafnað almennt að virkja fyrir stóriðju. "Þetta gæti haft það í för með sér að önnur verkefni fari hraðar í gang. Um það er ómögulegt að segja og ég veit ekki hvernig verksmiðjan og eigendur hennar munu bregðast við þessu. Hvort þeir grípi til einhverja aðgerða eða ekki," segir forsætisráðherra. Aðrir verði að svara því. Forsætisráðherra segir að sér finnist miður að stækkun álversins hafi verið hafnað í kosningunum. "Ég var búinn að segja það fyrir þessar kosningar að ég hefði greitt atkvæði með þessari stækkun ef ég byggi í Hafnarfirði. Þetta er mikilvægt mál fyrir bæjarbúa og fyrir bæjarsjóð og auðvitað fyrir landsmenn alla," segir forsætisráðherra. En væntanlega komi eitthvað annað í staðinn.
Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Sjá meira