Æfir með meistaraflokki Vals að Hlíðarenda 22. júní 2007 03:00 Þykir ótrúlega lunkinn í knattspyrnu og útilokar ekkert að taka fram takkaskóna þegar handknattleiksferlinum lýkur „
Mér finnst bara helvíta gaman í fótbolta og graslyktin er alltaf jafn góð,“ segir Ólafur Stefánsson, einn besti handknattleiksmaður Íslands og heims, en hann æfir um þessar mundir með meistaraflokki Vals í knattspyrnu. Ólafur þótti bráðefnilegur á græna vellinum og var meðal annars kallaður „Óli Sóli“ á sínum yngri árum en hann lagði takkaskóna á hilluna um tvítugt. Hann hefur þó haldið tækninni vel við enda er oft hitað upp á handknattleiksæfingum í fótbolta. „Mér finnst bara ótrúlega gaman að koma á Hliðarenda og kynnast Valsstrákunum í knattspyrnunni,“ segir Ólafur sem hefur hampað ófáum titlum með meistaraflokki Vals í handknattleik á þessum slóðum. Leikmaðurinn kvaðst ekki vera hræddur við að meiðast alvarlega á æfingum sem kynnu að setja strik í reikninginn hjá liði hans á Spáni, Ciudad Real. „Ég hef fengið að heyra slíkar vangaveltur síðastliðin fimmtán ár. Ef ég hefði alltaf hlustað á þær hefði ég ekki hreyft mig á sumrin.“ Ólafur lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali fyrir nokkrum misserum að honum stæði til boða að leika knattspyrnu með úrvalsdeildarliði þegar hanknattleiksferlinum lyki. „Ég útiloka ekkert endurkomu á knattspyrnuvöllinn eftir tvö ár þegar ég hætti í handbolta.“ Og ef marka má orð Willums Þórs Þórssonar, þjálfara Vals, yrði Ólafur mikill liðsstyrkur fyrir sérhvert lið í úrvalsdeildinni. „„Hann hefur gert þetta undanfarin ár og nýtir sér þetta til að brjóta upp æfingarformið hjá sér.“ Willum segir strákanna ekki taka landsliðsmanninn neinum silkihönskum, á því hafi reyndar aldrei gerst þörf. „Hann er sannur keppnismaður og gefur ekki tommu eftir,“ segir Willum . „Hann er kominn til æfa þegar hann mætir og gerir rúmlega það sem er beðið um og oftast meira. Og slíkt hugarfar er mjög mikilvægt fyrir unga leikmenn að sjá,“ bætir Willum við. „Og ég gæti haldið áfram að hlaða hann lofi því Ólafur er um margt mjög sérstakur. Í raun held ég að það sé alveg sama hvað hann tekur sér fyrir hendur, hann yrði alltaf góður í því.“ Að sögn Willums hefur Ólafur leikið frekar aftarlega á vellinum og bætir því við að margrómaður leiksskilningur hans í handknattleik skili sér vel á knattspyrnuvellinum. „Hugarfar hans skilur á milli feigs og ófeigs í þessu.“
Menning Mest lesið Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Lífið Heitustu rapparar landsins í eina sæng Tónlist Mættu á Seyðisfjörð í brúðkaup á Siglufirði Lífið Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Lífið Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Lífið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Fleiri fréttir Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Hvar eru þau nú? Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Sjá meira