Innlent

Um tvö þúsund á kjörskrá fyrir prófkjör Framsóknar

Það skýrist á sunnudag hvort Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra eða Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, leiði lista flokksins í Suðurkjördæmi í þingkosningum í vor.

Prófkjör verður haldið í kjördæminu á morgun og kosið á 26 stöðum. Ætlunin er að velja í sex efstu sætin á lista Framsóknar og gefa tólf manns kost á sér í prófkjörinu. Tæplega tvö þúsund manns eru á kjörskrá nú en prófkjörið er opið öllum þeim sem skrá sig í flokkinn og hafa lögheimili í Suðurkjördæmi. Það er því enn hægt að komast á kjörskrá.

Kjörfundi lýkur á morgun klukkan 18 en talið verður á Hótel Selfossi á sunnudag. Fyrstu tölur verða birtar klukkan 18 á sunnudag en endanleg niðurstaða mun liggja fyrir um klukkustund síðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×