Tíndu hátt í hundrað lítra af skít 23. maí 2007 03:00 Hundaeigendur komu saman og tíndu skít á Geirsnefi á sunnudaginn var. Líf og fjör var hjá hópnum þrátt fyrir vont veður. MYND/Valli „
Við höfum gert þetta einu sinni eða tvisvar áður. Aðallega vegna þess að það er illa gengið um á þessum hundasvæðum. Fólk hendir hundunum út úr bílunum en gleymir að tína upp eftir þá,“ segir Stefanía H. Sigurðardóttir, einn af aðstandendum Tryggs, hagsmunasamtaka hundaeigenda. Félagið stóð fyrir skítatínslu á Geirsnefi, á sunnudaginn var, og mættu um tuttugu manns til tínslunnar. „Með þessu átaki viljum við vekja fólk til meðvitundar um að hundahald í borg er hundahald í borg en ekki í sveit. Það eru líklega sjö til átta þúsund hundar skráðir á landinu og þar af fimm þúsund á höfuðborgarsvæðinu.Menn verða að fara að hugsa dæmið öðruvísi og tína upp eftir sig því hundar eða jafnvel börn geta farið í þetta,“ segir Stefanía. Að sögn Stefaníu hefur bóluefni gegn lifrarbólgu í hundum vantað í þrjú ár og því eru komnar kynslóðir hunda sem eru ekki varðar fyrir henni. „Það eru árstíðabundnar sveiflur í veikindum hjá hundum og með því að skilja eftir úrganginn eykur fólk á smithættuna,“ segir Stefanía en tekur skýrt fram að lifrarbólga hunda geti ekki smitast í fólk. „Lifrarbólgan sem og aðrir sjúkdómar virðast poppa reglulega upp og hvolpar sem eru að vaxa úr grasi eru sérlega móttækilegir fyrir þeim. Fólk sem er með got er hætt að fara út þar sem aðrir hundar eru vegna smithættunnar,“ segir Stefanía og bætir við. „Það er til dæmis ekki langt síðan að ræktandi missti got vegna parvóvíruss.“ Í skítatínslunni á sunnudag voru tíndir tveir fullir ruslapokar af skít og öðru drasli, hátt í hundrað lítrar. „Glerbrotin og stubbarnir eru hættulegir og geta stíflað meltingarveginn hjá hundunum. Það eiga allir þetta svæði saman og þá verður það líka að fylgja að fólk sé samtaka í að hreinsa svæðið,“ segir Stefanía hundaeigandi.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Sjá meira