Gómaði bíræfna matarþjófa 8. maí 2007 09:45 Sveinn sýndi mikla dirfsku og hugrekki þegar hann gómaði ásamt samstarfsmönnum sínum rússneskan glæpaflokk.
Sveinn Kjartansson, matreiðslumeistarinn góðkunni á Fylgifiskum, sýndi mikið hugrekki og dirfsku á föstudaginn þegar hann elti uppi glæpaflokk frá Rússlandi. Þeir höfðu látið greipar sópa í veisluþjónustu staðarins á Suðurlandsbraut og rænt bíl staðarins. „Þetta gæti líka hafa verið heimska,“ segir Sveinn í samtali við Fréttablaðið. Málavextir voru þeir að Sveinn og kollegar hans hjá Fylgifiskum höfðu verið að útbúa veislu fyrir kvöldið og komu til þess að ganga frá síðustu réttunum. Þegar þeir komu að húsnæðinu á Suðurlandsbrautinni sáu þeir að brotist hafði verið inn og hverjum einasta munnbita stolið. „Við ætluðum auðvitað að bæta þennan skaða, hófumst handa við að búa til nýja rétti en þegar við ætluðum að keyra réttina út uppgötvast að bílnum hafði líka verið stolið,“ útskýrir Sveinn og voru þá góð ráð dýr. „Við hringdum auðvitað bara á lögregluna,“ segir Sveinn. Þegar starfsfólkið stóð fyrir utan húsnæðið í öngum sínum yfir þjófnaðinum keyrir hins vegar bíll framhjá þeim sem er grunsamlega líkur Fylgifiska-bílnum. Og Sveinn æðir af stað til að sjá hvert hann fer. „Hann svínar fyrir annan bíl og keyrir inn í port sem er þarna skammt hjá,“ segir Sveinn og viðurkennir að honum hafi liðið eins og stórborgarlöggu í bandarískri kvikmynd. „Hjartað tók nokkur aukaslög og „rushið“ lifði langt fram eftir kvöldi,“ segir Sveinn. „Ég sé hvar bílnum er lagt og út koma tveir strákar. Ég geng bara að þeim og spyr hvað þeir séu að spá,“ segir Sveinn en mikið fát kom á þjófana þegar kokkakrumlurnar náðu taki á þeim. „Ég varð þess þó fljótlega áskynja að þeir voru ekki íslenskumælandi og held að þetta hafi hreinlega bara verið bófagengi sem fer um bæinn og stelur öllu steini léttara,“ segir Sveinn sem bætir því þó við að þegar leitað var að stolna matnum var augljóst að þjófarnir höfðu tekið hraustlega til matar síns. Aðeins einn lítill brauðmoli var eftir af öllum veisluföngunum. „Þannig að kannski verður að líta á þetta rán sem einhvers konar hrós.“
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Lífið Fleiri fréttir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Sjá meira