Lífið

Send í sveitina

Send í sveit
Send í sveit
Tvær nýjar ljósmyndasýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafni Íslands í dag. Í Myndasalnum má sjá sýninguna Auga gestsins með ljósmyndum frá Íslandsferðum norska útgerðarmannsins Hans Wiingaard Friis og á Veggnum er sýningin Send í sveit. Við opnun kl. 15 spilar KK og syngur.

Norðmenn stunduðu veiðar og útgerð á Íslandi um langt skeið og höfðu hér ítök undir lok 19. aldar og í upphafi 20. aldar. Einn norsku útgerðarmannanna var Hans Wiin-gaard Friis frá bænum Álasundi í Noregi. Hann stundaði þorskveiðar frá Hafnarfirði árin 1906 til 1909 en var auk þess áhugaljósmyndari og myndaði nokkuð á ferðalögum sínum um landið. Friis tók margar myndir af Hafnarfirði en auk þess heimsótti hann aðra útgerðarstaði þar sem norsk umsvif voru mikil, til dæmis Siglufjörð, Seyðisfjörð og Reyðarfjörð. Myndasyrpa Friis frá Íslandi er um margt merkileg. Hann sver sig í ætt við aðra áhugamenn í persónulegri og frjálslegri nálgun við myndatökurnar. Myndasafn hans er nú varðveitt í Ålesunds Museum en sýningin í Þjóðminjasafninu er unnin í samvinnu við Minjasafnið á Akureyri.

Hinn hlutinn af samsýningu þessari er á Veggnum, sýningarstað framan við ljósmyndasýningasalinn, en hún vekur vafalaust upp bernskuminningar úr sveitinni hjá mörgum landsmönnum. Í sumarbyrjun rifjar Þjóðminjasafnið upp þennan tíma með sýningu ljósmynda af börnum við sveitastörf, af kveðjustundum og fagnaðarfundum á BSÍ. Á meðan enn voru sterk tengsl milli íbúa á mölinni og í sveitum landsins var alsiða að börn í þéttbýli væru send í sveit, ýmist til ættingja eða vandalausra, yfir sumartímann. Þá voru flestir bæjarbúar fyrsta kynslóð á mölinni og áttu skyldfólk í sveitinni en einnig komst fólk í samband við sveitaheimili í gegnum ráðningarþjónustur eða smáauglýsingar. Á sýningunni Send í sveit má sjá myndir úr söfnum Ingimundar Magnússonar, Guðna Þórðarsonar, Gísla Gestssonar, Þorvaldar Ágústssonar og Ara Kárasonar. Einnig fékk Þjóðminjasafnið nokkra einstaklinga til að deila reynslu sinni úr sveitinni með sýningargestum. Báðar sýningar standa yfir 5. maí til 25. ágúst.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.