Raunveruleikaþáttur í lausu lofti 21. júlí 2007 05:00 Pálmi Hafði ekki hugmynd um að hann hefði keypt sjónvarpsþáttinn um leitina að næstu Nylon-stelpu. „
Ég kom eiginlega alveg af fjöllum þegar ég las þetta í blöðunum um morguninn, hafði ekki hugmynd um að ég væri búinn að kaupa þennan þátt," segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Eins kom fram í fjölmiðlum á miðvikudag er Emilía Björk Óskarsdóttir hætt í Nylon og er þegar hafin leit að arftaka hennar. Í fréttatilkynningu frá Einari Bárðarsyni, umboðsmanni sveitarinnar, stóð að tekist hefðu samningar við Stöð 2 og Sirkus um sýningar á raunveruleikaþætti um leitina. „Þetta kom okkur skemmtilega á óvart að við skyldum vera búnir að fá þennan þátt yfir til okkar. Ég hafði samband við Einar út af þessu og hann sagði mér að fjölmiðlar hefðu rangtúlkað þetta en ég gat ekki betur séð en að þetta stæði í fréttatilkynningunni," bætir Pálmi við. Í seinni fréttatilkynningunni frá Einari sem var send út laust fyrir klukkan tíu kom fram að Skjár einn og Stöð 2 hefðu sýnt þættinum töluverðan áhuga. Sjónvarpsstjórinn vildi þó ekki gefa upp hvort Stöð 2 myndi kaupa þáttinn, sagði þetta allt vera á byrjendastigi. Einar Sendi út tvær fréttatilkynningar, þá fyrri þar sem stóð að Stöð 2 og Sirkus hefðu keypt þáttinn en þá seinni að Skjár einn og Stöð 2 hefðu sýnt honum áhuga. Björn Þór Sigurðsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, tók í svipaðan streng og sagðist eingöngu vita af þessari hugmynd. „Við erum að velta þessu fyrir okkur en engin tilboð hafa þó verið gerð. Þetta er mjög spennandi fyrir okkur enda vorum við með fyrsta þáttinn um þær stelpur. Vandamálið er hins vegar að flestar sjónvarpsstöðvar hafa skipulagt haustið um þessar mundir. En við skoðum alltaf allt," segir Björn.
Mest lesið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Sjá meira