Slúðurblað í Suður-Ameríku áhugasamt um Höllu 13. mars 2007 10:00 Halla, fréttir af meintu samband hennar og Jude Law hafa flogið víða og rötuðu meðal annars á síðu argentíska slúðurblaðsins Gente.
Argentíska blaðið Gente sem þýðir á hinu ylhýra Fólk birtir frétt um félagana Gael Garcia Bernal og Jude Law. Báðir áttu þeir það sameiginlegt að hafa verið viðstaddir afhendingu frönsku kvikmyndaverðlaunanna Cesar þar sem Bernal fór tómhentur heim en Law var heiðraður fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar. En blaðamaðurinn argentíski upplýsir lesendur sína jafnframt um annan leyndardóm úr lífi Law sem áður hefur komið fram í heimspressunni og skrifar: „Al parecer, tiene nueva novia, Halla Vilhjalmsdottir, conductora de la tevé islandesa," sem útleggst á íslensku: „Virðist sem hann eigi nýja kærustu, Höllu Vilhjálmsdóttur, þáttastjórnanda í íslensku sjónvarpi." Fréttablaðið hafði samband við Höllu vegna málsins en hún tjáði blaðamanni að ef umræðuefnið snérist ekki um vinnuna myndi hún ekki tjá sig og gaf lítið fyrir þær hugmyndir að fara til Suður-Ameríku og herja á hinn ört vaxandi sápuóperumarkað í kjölfar þessa. „Ég ræði ekki um mitt einkalíf," sagði Halla og þar við sat. Gente er ógnarstórt blað í Argentínu og er upplag þess margfalt á við það sem blöð á borð við Hello eru gefin út í. Það er samblanda af íslensku tímartitunum Nýju lífi og Séð og heyrt en á forsíðu umrædds blaðs er Susana Gimenez, ein vinsælasta sjónvarpstjarna landsins, en hún er að byrja með nýja þáttaröð í argentíska sjónvarpinu. Fréttablaðið greindi frá kvöldverði Höllu og Judes Law á Dómó um miðjan febrúar og fór fréttin víða, rataði meðal annars inn á síður breska götublaðsins The Sun. Law var staddur hér í stuttu fríi ásamt börnunum sínum þremur og barnapíu og skellti sér meðal annars í sund og á skauta eins og frægt er orðið. Af Law er það síðan að frétta að hann er um þessar mundir orðaður við bandarísku glamúrgelluna Lindsay Lohan og sannast þar hið fornkveðna, að Law er ekki við eina fjölina felldur.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira