Fyrsta opinbera pókermótið á Íslandi um helgina 15. júní 2007 10:00 Sindri Lúðvíksson. Hann stendur fyrir fyrsta opinbera pókermótinu á Íslandi sem haldið verður í Dugguvogi 12 um helgina.
Fyrirhugað er að halda fyrsta opinbera pókermótið á Íslandi um helgina. Mótið er haldið á vegum gismo.is, verslun á netinu sem selur vörur sem tengjast fjárhættuspilum. Samkvæmt almennum hegningarlögum eru fjárhættuspil bönnuð á Íslandi. Forsvarsmenn mótsins telja sig þó ekki vera að brjóta lög. “Við teljum okkur ekki vera að brjóta lög en það getur verið að einhverjir aðrir túlki það á annan hátt,” segir Sindri Lúðvíksson, hjá gismo.is. “Við ætlum fyrst og fremst að nota mótið sem auglýsingu fyrir síðuna okkar.” Samkvæmt almennun hegningarlögum getur sá sem hefur atvinnu af fjárhættuspilum eða kemur öðrum til þátttöku í þeim þurft að sæta sektum eða fangelsi, allt að einu ári. Sömu viðurlög gilda um þann sem aflar sér tekna beint eða óbeint með því að láta fjárhættuspil fara fram í húsnæði sem hann hefur til umráða. Sindri telur sig ekki vera að brjóta lög þar sem mótshaldarar hafa ekki fjárhættuspil að atvinnu né hafi beinar tekjur af mótinu. “Þetta mót er alveg eins og golfmót eða önnur þar sem gjalds er krafist fyrir þátttöku. Þar rennur ákveðinn hluti gjaldsins til félagsins en hluti þess fer í vinninga,” segir Sindri. “Hjá okkur mun mótsgjaldið hins vegar fara óskipt til vinningshafana.” Máli sínu til stuðnings bendir Sindri á pistil sem Jóhannes Stefán Ólafsson, mastersnemi í lagadeild Háskóla Íslands, birtir á heimasíðu sinni. Þar færir Jóhannes Stefán rök fyrir því hvernig hægt er að stunda fjárhættuspil á löglegan hátt. Jóhannes Stefán segist hafa sent greinagerð sína á dómsmálaráðuneytið og starfsmenn þar hafi tekið undir rök hans. Ekki fengust svör frá dómsmálaráðuneytinu þegar Fréttablaðið leitaði eftir því í gær.
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira