Innlent

Fór fram af háum vegakanti

MYND/365

Maður slasaðist alvarlega þegar bíll, sem hann var í, fór fram af háum vegkanti á Hellisheiði eystri í gær og endastakkst. Ökumaður og annar farþegi í bílnum meiddust líka, en ekki alvarlega.

Hinn slasaði var fluttur í sjúkrabíl til Egilsstaða og þaðan í sjúkraflugvél til Reykjavíkur þar sem hann var lagður inn á Slysadeild Borgarspítalans. Mjög hvasst var á vettvangi þegar slysið varð, en nánari tildrög liggja ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×