Segist hafa gert ráðstafanir vegna öryggis starfsmanna sinna 20. febrúar 2006 20:15
Fyrirtækið Enex, sem Jón Þór Ólafsson starfaði hjá, segist hafa gert viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi starfsmanna sinna í El Salvador. Forsvarsmenn þess vísa fréttum, þar sem gefið er í skyn að þeir hafi hunsað ráðleggingar um slíkt, á bug. Ófremdarástand ríkir í El Salvador en morðtíðni þar er með því hæsta sem gerist í heiminum. Að því er fram kemur í vefútgáfu dóminíska dagblaðsins Dominican Today voru 414 myrtir í landinu fyrsta einn og hálfan mánuð þessa ár. Á síðasta ári voru 55,5 af hverjum hundrað þúsund íbúum El Salvador myrtir, hérlendis er hlutfallið 0,5 af hverjum hundrað þúsund. Morð eru með öðrum orðum eitthundrað sinnum algengari í El Salvador en á Íslandi. Bíatrís Sarkó Sveinsson, ræðismaður Íslands í landinu, sagði í samtali við NFS í dag að á sínum tíma hefði hún mælt með því við Enex, fyrirtækið sem Jón Þór Ólafsson starfaði hjá, að ráðinn yrði fyrir hann lífvörður. Nú laust fyrir fréttir sendi Lárus Elíasson, framkvæmdastjóri Enex, frá sér yfirlýsingu þar sem kemur að gerðar hafi verið ráðstafanir til að verða við ábendingum ræðismannsins um vopnaða gæslu öryggisvarða á virkjanasvæðinu í Berlin, sem er skammt frá höfuðborginni. Auk þess kveðst Enex hafa komið því til leiðar að starfsmannaíbúðir fyrirtækisins séu á svæðum sem talin eru mjög örugg. Að öðru leyti segist Enex leggja áherslu á að fylgja sömu öryggiskröfum og önnur erlend fyrirtæki með svipaða starfsemi í landinu. Í yfirlýsingunni segir svo orðrétt: "Enex er umhugað um öryggi starfsmanna sinna. Fréttir þar sem beinlínis er gefið í skyn að forráðamenn Enex hafi hunsað ráðleggingar um að ráða lífvörð til að gæta Íslendinga í El Salvador eiga sér enga stoð í veruleikanum." Að sögn alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra er ekkert nýtt að frétta af rannsókn málsins en íslensk yfirvöld fylgjast grannt með framvindunni.
Erlent Fréttir Mest lesið „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Erlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent Örlög Bayrou ráðast 8. september Erlent Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Innlent Skjálfti við Húsavík Innlent „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Fleiri fréttir Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Sjá meira