Krefjast óskoraðs sjálfstæðis Kosovo 20. febrúar 2006 19:51
Viðræður um framtíð hins umdeilda Kosovo-héraðs í Serbíu hófust í Austurríki í dag. Kosovo-Albanar vilja að héraðið fái fullt og óskorað sjálfstæði en serbneski minnihlutinn hugsar til þess með hryllingi. Frá því að Atlantshafsbandalagið stóð fyrir loftárásum sínum vorið 1999 hefur Kosovo aðeins að nafninu til verið hluti sambandsríkisins Serbíu og Svarfjallalands . Sameinuðu þjóðirnar hafa í reynd stýrt héraðinu þótt heimamenn hafi skipað ríkisstjórn og löggjafarþing. Í dag hófust loks viðræður á milli Serba og Kosovo-Albana, undir handleiðslu Sameinuðu þjóðanna, um framtíð Kosovo en þeim hafði verið frestað í síðasta mánuði þegar Ibrahim Rugova,forseti héraðsins,andaðist. Níu af hverjum tíu íbúum Kosovo eru af albönsku bergi brotnu og þeir vilja flestir fullt og óskorað sjálfstæði. Ise Borovci, Kosovo-Albani, vonast til að viðræðurnar leiði til þess að sjálfstæði Kosovo verði viðurkennt. Kosovo-Albanar hafi þjáðst mikið undanfarin ár og eina lausnin sé að veita þeim fullt sjálfstæði. Í augum Serba er Kosovo ginnheilagur staður, líkt og Þingvellir eru í hugum Íslendinga, og því geta þeir ekki hugsað sér að missa þar öll völd. Einungis fimm prósent íbúa héraðsins eru Serbar, þeir hafa átt mjög undir högg að sækja á undanförnum árum og eru því svartsýnir á framtíðina. Stjórnmálaskýrendur telja hins vegar ólíklegt Kosovo fái fullt sjálfstæði á meðan serbnesk yfirvöld eru ekki einu sinni til viðræðu um það. Óvíst er að Kosovo hafi yfirleitt efnahagslega burði til að standa undir sér og auk þess má búast við að slíkt mætti andstöðu í alþjóðasamfélaginu, til dæmis á meðal Rússa, sem þá þyrftu að sýna kröfum tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna meiri skilning. Viðræður næstu daga munu að líkindum fremur snúast um hvernig tryggja má stöðu og réttindi serbneska minnihlutans í héraði sem áfram mun verða hluti af Serbíu í orði en ekki á borði.
Erlent Fréttir Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Allir mennir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira