Gísli Tryggvason stefnir í 2. sæti Framsóknar í Suðvesturkjördæmi 19. október 2006 17:17
Gísli Tryggvason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningar vorið 2007. Gísli hefur gegnt embætti talsmanns neytenda síðan það var sett á fót um mitt ár 2005. Áður var Gísli framkvæmdarstjóri og lögmaður Bandalags háskólamanna í tæp 7 ár og hefur hann einnig starfað sem blaðamaður, segir í tilkynningu frambjóðandans. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á vegum Framsóknarflokksins á undanförnum 10 árum og á meðal annars sæti í miðstjórn. Gísli lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands 1997 og MBA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík 2004. Hann hlaut réttindi sem héraðsdómslögmaður 1998. Gísli er 37 ára gamall, fæddur í Björgvin í Noregi en alinn upp á Akureyri. Hann er stúdent frá Marie Kruses Skole í Farum í Danmörku og hefur verið búsettur í Kópavogi frá lokum árs 2000. Gísli er kvæntur Brynju Daníelsdóttur, hjúkrunarfræðingi og sjúkranuddara. Þau eiga þrjú börn. Gísli var ritstjóri Úlfljóts, tímarits laganema, árið 1994 og sat í stjórn Orators, félags laganema. Gísli starfaði með Röskvu, samtökum félagshyggjufólks í Háskóla Íslands. Af helstu baráttumálum Gísla í fyrri trúnaðarstörfum má nefna jafnræði í lífeyrismálum, bætta stöðu skjólstæðinga Lánasjóðs íslenskra námsmanna, nýtt fæðingarorlofskerfi karla og kvenna og endurskoðun verðtryggingar lána. Þá segir í tilkynningu Gísla, að nái hann kjöri á Alþingi muni hann áfram leggja áherslu á hagsmuni og réttindi launafólks og neytenda svo og raunverulega valkosti í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og gagnsæi í viðskiptum. Í samræmi við 90 ára sögu Framsóknarflokksins mun Gísli einnig freista þess að stuðla að auknu jafnrétti, skýrara hlutverki hins opinbera, öflugu starfi almannasamtaka og bættum aðstæðum fjölskyldufólks, segir í tilkynningunni.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Sjá meira