"Farvegur þjóðarsáttar, " segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar 11. október 2006 18:06 "
Farvegur þjóðarsáttar um viðkvæmt deilumál," segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar um verndun og nýtingu auðlinda sem kynntar voru í dag. Fulltrúar stjórnarandstöðu í nefndinni gerðu þó athugasemdir við hvernig rannsóknarleyfum um nýtingu jarðhita og vatnsafls verður úthlutað fram til ársins 2009 Auðlindanefnd var skipuð af iðnaðarráðherra í vor til að gera tillögur um hvernig valið skuli á milli umsókna um rannsóknar-og nýtingarleyfi auðlinda í jörðu. Henni var einnig falið að marka framtíðarstefnu um nýtingu auðlinda. Helstu niðurstöður nefndarinnar um verndar og nýtingaráætlun eru þessar : 1) Alþingi samþykki ekki síðar en árið 2010 lög eða þingsályktanir um sérstaka verndar-og nýtingaráætlun fyrir auðlindir í jörðu (m.a. jarðhita) og vatnsafl til raforkuframleiðslu til t.d. 25 ára í senn en með ákvæði um endurskoðun á gildistímanum 2) Víðtækt samráð verði um mótun verndar- og nýtingaráætlunar með því að skipa starfshóp þar að lútandi. Í honum verði fulltrúar forsætisráðuneyis, iðnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar, Orkustofnunar, Íslenskra orkurannsókna, náttúruverndarsamtaka, Smaorku og Sambands íslenskra sveitarfélaga. 3) Verndar-og nýtingaráætlunin verði gerð með tilliti til niðurstaðna rannsókna og mats á hugsanlegum virkjunarkostum í skýrslu um niðurstöður 1. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og niðurstaða rannsókna og mats 2. áfanga rammaáætlunar, sem áætlað er að liggi fyrir árið 2009. Jafnframt verði litið til annarra rannsókna og áætlana eftir því sem við á og er þá sérstaklega horft til gildandi náttúrverndaráætlunar á hverjum tíma og grunnrannsókna Náttúrufræðistofnunar sem áætlað er að ljúki á næstu árum. 4) Stjórnvöld tryggi fjármuni til að ljúka nauðsynlegum grunnrannsóknum vegna rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma árið 2009 Iðnaðarráðherra segir að tillögur auðlindanefndar séu merkur áfangi í því að mynda heilstæða áætlun um nýtingu og vernd auðlinda hér á landi. Þegar ráðherra er inntur eftir því hvaða áhrif skýrslan hafi á auðlindanefndar á undirbúning verkefna á sviði stóriðju í nánustu framtíð eins og stækkun álversins í Straumsvík, álver á Húsavík og Helguvík, segist hann ekki geta svarað því en þessar tillögur tilheyri framtíðinni. Athygli vekur að verndar- og nýtingaráætlunin tekur ekki gildi fyrr en árið 2010 og hefur nefndin gert tillögur um hvernig umsóknum um rannsóknar-og nýtingarleyfi verði háttað fram að þeim tíma. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri Græns framboðs og nefndarmaður í auðlindanefnd, skrifaði undir skýrsluna en bókaði þó fyrirvara. Henni finnst ekki nógu langt gengið í verndaráætlunum og alls óljóst með úthlutun rannsóknarleyfa næstu fjögur árin.Þingflokkur Samfylkingarinnar ályktaði um tillögur nefndarinnar og fagnar áfangasigri sem náðst hefur í náttúruverndar-og auðlindamálum. Enn vanti þó töluvert upp á að tillögur auðlindanefndar til að ná sátt um náttúruverndar - og auðlindamál og til að ná tökum á virkjana-og stóriðjuframkvæmdum þarf að veita Alþingi fulla heimild til ráðstöfunar á takmörkuðum losunarheimildum
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira