Lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng 5,7 milljarðar króna 21. mars 2006 19:02
Tékkneskur verktaki, Metrostav, í samstarfi við Háfell, átti lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng, upp á 5,7 milljarða króna. Tilboð þeirra reyndist 720 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Útboðið var lokað sem þýðir að verktakar höfðu verið samþykktir fyrirfram í forvali.Þetta er í annað sinn sem Vegagerðin býður út Héðinsfjarðargöng en fyrir þremur árum áttu Íslenskir aðalverktakar og NCC lægsta boð. Ríkisstjórnin frestaði þá framkvæmdum og bar fyrir sig þenslu og hlutust af málaferli í kjölfarið sem enn sér ekki fyrir endann á.Kostnaðaráætlun að þessu sinni hljóðaði upp á tæplega sex og hálfan milljarð króna. Lægsta boð áttu tékkneska fyrirtækið Metrostav og Háfell, upp á liðlega 5,7 milljarða króna. Það er 89% af áætlun og um 720 milljónum króna undir henni. Leonard Nilsen og Héraðsverk áttu næstlægsta boð, en síðan komu Arnarfell og Ístak en langhæsta boð áttu Marti Contractors og Íslenskir aðalverktakar, upp á tæplega níu milljarða króna. Vegamálastjóra líst vel á tilboðin þótt kínverskur verktak, sem talinn var líklegastur til að bjóða lægst, hafi hætt við í síðustu viku.Héðinsfjarðargöngin verða tvenn, 6,9 kílómetra löng milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar og 3,7 kílómetra löng milli Héðinsfjarðar og Siglufjarðar. Framkvæmdir eiga að hefjast í sumar og ljúka árið 2009.Héðinsfjarðargöng eru stærsta einstaka framkvæmdin sem ríkið hefur boðið út um árabil. Aðeins tónlistarhús í Reykjavík jafnast á við göngin en ríkið stendur að því í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Sjá meira