Svartolía lak úr Wilson Muuga í dag 23. desember 2006 17:42
Svartolía lak í dag úr kýpverska flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði við Hvalsnes á þriðjudag. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Umhverfisstofnun er olíubrákin kílómetri á lengd og 200 metra breið en hún er ekki samfelld. Starfsmenn á vegum Umhverfisstofnunar fóru um borð í skipið í dag með þyrlu Landhelgisgæslunnar og sáu þá að svartolía var farin að leka úr skipinu og lá taumur í átt til lands. Er um að ræða svartolíu úr rifnum botntönkum skipsins. Meðal verkefna á skipsstað var að setja einstreymisloka á öndunarop sem liggur frá botngeymunum upp á yfirborð. Þegar því verki var lokið dró umtalsvert úr lekanum og þegar farið var frá borði var ástandið þannig að flekkurinn hafði slitnað frá skipinu. Fulltrúar frá heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og umhverfisnefnd Sandgerðis skoðuðu fjörur við strandstað og í næsta nágrenni. Við fjörukönnun sást enginn olíublautur fugl en vegna mikils fuglalífs er talið sennilegt að fugl muni lenda í þessari olíu. Með flóði og auknu brimi samfara vaxandi vindi nú með kvöldinu eykst hreinsimáttur náttúrunnar og því munu náttúruöflin sjá um að brjóta olíuna niður í nótt. Vont veður hefur verið á strandstaðnum nánast frá því að skipið strandaði en nú er útlit fyrir að það versta sé yfirstaðið. Að sögn Umhverfisstofnunar situr skipið stöðugt á fjörunni en hefur þó færst eilítið nær landi síðustu nótt og situr því hærra. Niðurstaðan er sú hvað skipið varðar að allar líkur eru á því það situr og muni sitja stöðugt. Áætlað er að fljúga yfir svæðið strax í birtingu á morgun til könnunar á olíuflekk og senda mann í skipið þannig að hægt sé að kíkja í lestar og geyma. Gengnar verða fjörur og fylgst verður með skipinu af og til. Í framhaldi af þessu verður staðan endurmetin.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Sjá meira