Von á tugþúsundum í miðbæinn í kvöld 23. desember 2006 16:47
Búast má við að tugþúsundir manna leggi leið sína í miðbæinn í kvöld, Þorláksmessukvöld, enda er veðrið í borginni með ágætum og útlit fyrir að svo verði áfram. Lögreglan í Reykjavík verður með töluverðan viðbúnað eins og jafnan þegar svo margir koma saman en í dag allt gengið vel fyrir sig í miðbænum og annars staðar í borginni. Lögreglan kvartar þó yfir því að bílum sé illa lagt í Þingholtunum og Laugaveginum og jafnvel lagt á stöðum þar sem ekki má þannig að götur hafa jafnvel lokast af þeim sökum. Brýnir lögregla fyrir ökumönnum að virða lögin og nýta sér bílastæðahúsin í miðbænum enda er frítt í þau í dag og opið þar til miðnættis Eins og á Þorláksmessu undanfarin 27 ár standa friðarsinnar fyrir friðargöngu í miðbænum. Safnast verður saman við Hlemm þaðan sem lagt verður af stað klukkan 18, eða eftir klukkutíma. Gengið verður niður Laugaveginn með kyndla og undir tónum söngfólks úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og staðnæmst á Lækjartorgi þar sem stutt dagskrá verður í boði.Sams konar friðargöngur fara einnig fram á Ísafirði klukkan 18, þar sem gengið verður frá Ísafjarðarkirkju og niður á Silfurtorg, og á Akureyri kl. 20 þar sem gengið verður frá Samkomuhúsinu og út á Ráðhústorg.Tónleikar með tenórunum þremur, sem haldnir hafa verið undanfarin ár á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu, falla niður að þessu sinni af óviðráðanlegum orsökum.Að sögn Sifjar Gunnarsdóttur hjá Höfuðborgarstofu stóð til að flytja tónleikana á svið niður á Ingólfstorg þar sem hornið á Bankastræti og Ingólfstorgi er fyrir löngu orðið of lítill staður. Hins vegar hafi skipuleggjendur átt fund með Veðurstofunni á fimmtudag sem hafi varað við því að setja upp svið í kvöld vegna illviðris. Hins vegar hafi NÚ ræst úr spánni nú en þá sé of seint að fara af stað.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira