Þrjú spennandi prófkjör á morgun 10. nóvember 2006 18:51
Nærri lætur að um fjórðungi þingsæta verði ráðstafað í þremur prófkjörum sem fram fara á morgun. Samfylkingin velur frambjóðendur sína í báðum Reykjavíkurkjördæmum og Sjálfstæðisflokkur sína menn í Suður - og Suðvesturkjördæmi.Nú síðdegis höfðu á níunda hundrað manns kosið utankjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin en prófkjörið er opið flokksmönnum og þeim sem á kjörstað lýsa yfir stuðningi við flokkinn. Flokkurinn hefur nú átta þingsæti í kjördæmunum en alls keppa fimmtán manns um að hreppa efstu sæti listans. Enginn fer þó opinberlega gegn formanni flokksins, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í efsta sætið, en meiri spenna er um annað sæti, milli Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi formanns, og Jóhönnu Sigurðardóttur, sem síðast var í því sæti Mesta spennan snýst þó um það hvort og þá hvaða nýliðum takist að skáka sitjandi þingmönnum en meðal þeirra sem gera hríð að þeim er Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri. Í höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í Reykjavík höfðu 390 manns nú síðdegis kosið utankjörfundar 150 manns í suðurkjördæmi og 390 manns í suðvesturkjördæmi. Þar fer enginn gegn Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni flokksins, í efsta sætið. Flokkurinn fékk síðast fimm þingmenn í kjördæminu auk þess sem eitt þingsæti flyst í kjördæmið. Þrír efstu menn flokksins í kjördæminu í síðustu kosningum, Árni M. Mathiesen, Gunnar Birgisson og Sigríður Anna Þórðardóttir, eru ekki í framboði þar nú og því ljóst að nýliðar munu hreppa líkleg þingsæti á morgun en alls eru ellefu manns í framboði. Fjármálaráðherrann hefur hins vegar flutt sig yfir í suðurkjördæmið þar sem þrettán manns keppa, þeirra á meðal fjórir alþingismenn og tveir fyrrverandi alþingismenn en flokkurinn hefur nú þrjá þingmenn í kjördæminu. Kastljósið mun ekki síst beinast að því hvort Árna Johnsen takist að ná einu af efstu sætunum. Prófkjörum Samfylkingar í Reykjavík og Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi lýkur klukkan 18 annaðkvöld og verða fyrstu tölur birtar fljótlega eftir það á visir.is. Prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Suðurkjörkæmi lýkur klukkan 20 en fyrstu tölur verða birtar klukkan 22.
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Fleiri fréttir Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Sjá meira