Innlent

"Bjór með blóðbragði" í Ekstrabladet

Ekstra bladet tengir í dag fjármálaveldi Björgólfs Guðmundssonar og sonar hans, Björgólfs Thors, við blóðug mafíuátök í Rússlandi. Nefnd eru til sögunnar leigumorð og pólitísk spilling í baráttu um bjórmarkaðinn í borginni.

Áfram heldur Ekstrablaðið danska að tengja íslenska fjármálamenn við spillingu og glæpi. Hvergi er nokkur beinlínis sakaður - en bent er á vafasama samferðamenn og óheilbrigt umhverfi. Í dag var komið að feðgunum Björgólfi Guðmundssyni, Björgólfi Thor, syni hans og Magnúsi Þorsteinssyni - en saman byggja þeir auðsinn á bjórverksmiðjunni Bravó í Pétursborg í Rússlandi.

"Mafíustríð á bjórmarkaði" er yfirskrift opnugreinar Eklstrabladed í dag. Rifjað er upp launmorðið á áhirfamiklu þingkonunni Galinu Starovojtovu árið 1998 en hún var skotin í hnakkann fyrir utan heimili sitt. Ráðgjafi hennar greindi frá því fyrir rétti, segir Ekstrabladet, að skömmu fyrir morðið hafi menn frá Björgólfi Thor leitað ásjár hjá henni vegna þvingana sem þeir hafi orðið fyrir.

Árið eftir var komið að keppinautum íslendinganna en þá myrtu leigumorðingjar Aslanbek Gallojev um hábjartan dag en hann var tengdur Baltika bjórverksmiðjunni, helsta keppinauti Björgólfsfeðga. Aðstoðarforstjóri sama fyrirtækis Ilja Weisman hlaut sömu örlög árið 2000.

Tengir Ekstrabladed síðan þessi blóðugu mafíuátök við pólitíska spillingu. Er því svo slegið fram að þrátt fyrir þetta stríð hafi Björgólfur Thor "sloppið" - eins og það er orðað - frá Rússlandi með 400 milljónir Bandaríkjadala í vasanum. Er vísað til sölu á Bravó verksmiðjunni til Heiniken, en fyrir afraksturinn gátu feðgarnir og Magnús byggt upp veldi sitt.

Með greininni, sem hefur undirfyrirsögnina "bjór með blóðbragði" er síðan birt stór mynd af Björgólfi Thor - sem eins og kunnugt er hefur komist á lista yfir ríkustu menn heims.

Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga segir að greinin í Ekstrabladet gefi ekki tilefni til andsvara eða aðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×