Þúsundir fá leiðréttingu á vaxtabótum 20. október 2006 18:57
Þeim sem fá vaxtabætur á þessu ári fjölgar um rúmlega fimm þúsund, nái frumvarp fjármálaráðherra um leiðréttingu vaxtabóta fram að ganga. Þá mun mikill fjöldi fólks fá hækkun á þegar greiddum vaxtabótum. Fjármálaráðherra segir rangt að ekki hafi verið haft samráð við verkalýðshreyfinguna áður en frumvarpið var lagt fram á Alþingi. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, sagði í fréttum okkar í gær, að stjórnvöld hefði gengið á bak orða sinna varðandi samráð við ASÍ um leiðir til að leiðrétta greiðslur vaxtabóta. En vegna mikillar hækkunar fasteignaverðs, langt umfram verðbólgu, fengu tíu þúsund færri greiddar vaxtabætur í ágúst síðast liðnum en í fyrra. Fjármálaráðherra segir rangt að ekki hafi verið haft samráð við ASÍ. Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að samráð hafi verið haft við Alþýðusambandið. Fulltrúar þeirra hafi verið boðaðir á fund og þeim kynnt innihald frumvarpsins. Ráðherra sagðist ekki kannast við að ASÍ hafi gert neinar stórkostlegar athugasemdir við frumvarpið. Ef frumvarp fjármálaráðherra nær fram að ganga munu rúmlega fimm þúsund manns sem ekki fengu neinar vaxtabætur í haust, fá greiddar út vaxtabætur. Enn fleiri fá síðan leiðréttingu á sínum vaxtabótum og eiga því von á greiðslu frá ríkinu um leið og frumvarpið verður að lögum. Árni segir ekki hægt að ganga lengra í leiðréttingunni. Það hafi verið horft til áhrifa hækkunar fasteignaverðs á skerðingu vaxtabótanna, en aðrir þætti hafi líka áhrif á lækkun vaxtabóta. Þegar horft sé til áhrifanna um allt land sé þetta niðurstaðan, en fasteignaverð hafi breyst misjafnlega eftir landshlutum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira