ASÍ segir ríkisstjórnina svíkja loforð um leiðréttingu vaxtabóta 19. október 2006 17:50
Forysta Alþýðusambandsins segir stjórnvöld hafa svikið loforð frá því í sumar um leiðréttingu á vaxtabótakerfinu. Nýtt frumvarp fjármálaráðherra dragi mun minna úr skerðingu vaxtabóta en heitið hafi verið. Í sumar lá við að verkalýðshreyfingin segði upp kjarasamningum vegna mikillar verðbólgu sem eytt hafði umsömdum kajarabótum. Aðilar vinnumarkaðarins náðu hins vegar samkomulagi sín á milli og ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu um aðgerðir til að bæta launafólki upp kaupmáttarskerðinguna. Í þeirri yfirlýsingu var m.a. lofað að gera útbætur á vaxtabótakerfinu, þar sem margir yrðu fyrir skerðingu bótanna vegna mikillar hækkunar fasteignaverðs. Tíu þúsund færri fengu vaxtabætur þegar þeim var úthlutað í ágúst síðast liðnum, en fengu bætur í fyrra. Þetta sparaði ríkissjóði að óbreyttu 700 milljónir króna í útgjöld. Fjármálaráðherra hefur hins vegar lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að vaxtabætur hjóna byrji að skerðast við 7,7 milljón króna hreina eign í stað 6,2 milljóna áður og við hreina eign einstaklinga upp á 4,6 milljónir í stað 3,7 milljóna áður. Þetta er um 25 prósenta hækkun skerðingarmarkanna og þýðir að sumir fá leiðréttingu á vaxtabótum sínum í ár. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins (ASÍ) segir að með þessu frumvarpi sé ríkisstjórnin að ganga á bak orða sinna, miðað við það samkomulag sem gert var í júní. Þá hafi ríkisstjórnin heitið nánu samráði við útfærslu þeirra leiða sem farnar yrðu við leiðréttingu vaxtabóta. Sú leið sem boðuð sé í frumvarpinu sé aftur á móti leið sem Alþýðusambandsforystan hafnaði að farin yrði. Hún bætti engan veginn þann skaða sem varð vegna hækkana á fasteignaverði. Starfsfólk ASÍ hefur sett upp dæmi. Fyrra dæmið er af hjónum með 440 þúsund krónur í mánaðartekjur og 20,7 milljón króna húsnæðislán. Ef fasteignaverð hefði fylgt verðbólgunni hefðu þessi hjón fengið 236 þúsund krónur í vaxtabætur í ágúst síðast liðnum. Fasteignaverð hækkaði hins vegar um 29 prósent, eða um 25 prósent umfram verðbólgu og því fengu þessi hjón, vegna eignamyndunar, engar vaxtabætur. Miðað við hækkun fasteignaverðsins hefðu viðmiðunarmörk til skerðingar bóta, þ.e. hvenær bætur skerðast miðað við hreina eign, þurft að hækka úr 6,2 milljónum í 11,3 milljónir eða um 83 prósent. Ef dæmið fyrir einstakling með 220 þúsund króna mánaðartekjur og 13, 5 milljón króna húsnæðislán er skoðað, sést að hann hefði fengið 105 þúsund í vaxtabætur ef húsnæðisverð hefði eingöngu fylgt verðbólgunni. Hann fékk engar bætur í ágúst vegna 29 prósenta hækkunar fasteignaverðs og viðmiðunarmörk hans hefðu þurft að hækka úr 3,7 milljónum í 6,8 milljónir, eða um 83 prósent í stað 25 prósent eins og frumvarp fjármálaráðherra gerir ráð fyrir. Gylfi segir forystumenn ASÍ vænta þess að ríkisstjórnin muni þrátt fyrir þetta hafa samráð við ASÍ um útfærslu leiða og leggja til þá fjármuni sem heitið var að leggja fram til þessa máls og bæta úr þeim vanda sem fyrir er en koma ekki bara fram með einhverjar leiðir.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Sjá meira