Enginn hvalur enn 18. október 2006 18:19 Hvalur 9. MYND/Gunnar V. Andrésson
Hvalstöðin í Hvalfirði er ekki með vinnsluleyfi til að verka hvalkjöt. Stefnt er að því að leysa það mál áður en Hvalur 9 kemur að landi með fyrsta hvalinn til vinnslu. Engar fregnir hafa enn borist af veiði. Hvalur 9 kom á miðin síðdegis í dag og er nú staddur um eitt hundrað mílur vestur af Snæfellsnesi, kominn langleiðina að miðlínu við Grænland. Gervihnattasamband lá niðri lengi dags, en Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals hf. sagði nú rétt fyrir fréttir að samkvæmt hans bestu vitneskju hefði skutli ekki verið skotið í hval ennþá. Eftir að hvalur hefur verið veiddur, má það ekki taka meira en sólarhring að koma honum í vinnslu ef kjötið á að vera hæft til neyslu. Sem stendur er Hvalur 9 15-17 tíma stím frá stöðinni í Hvalfirði. En hvað gerist þegar komið er í land? Áður en umbætur hófust á hvalstöðinni í Hvalfirði hófust fóru tveir dýralæknar frá Landbúnaðarstofnun og tóku stöðina út, að beiðni Hvals hf., en embætti yfirdýralæknis heyrir undir Landbúnaðarstofnun. Dýralæknarnir mátu aðstæður svo að skilyrði fyrir vinnsluleyfi á hvalkjöti til manneldis væru ekki uppfyllt í stöðinni. Síðan hafa miklar umbætur verið gerðar á stöðinni, segir Kristján Loftsson. Hann segir einnig að honum hafi borist bréf frá Landbúnaðarstofnun eftir úttekt dýralæknanna, þar sem sagði að hvalkjötvinnsla og leyfi fyrir henni væru ekki á hennar könnu. Kristján segist hafa vottorð frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og telur því öll leyfi fyrir hendi, enda verði öll vinnsla eins og áður tíðkaðist. Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, var kallaður á fund í sjávarútvegsráðuneytinu í dag. Björn Friðrik Brynjólfsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, sagði það rétt að nokkur lagaóvissa ríkti um hver ætti að veita starfs- og vinnsluleyfið en stefnt væri að því að finna lausn áður en Hvalur 9 kemur í land með kjöt til verkunar. Ekki náðist í yfirdýralækni eftir fundinn í dag.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira