Innlent

Tillögur gætu haft áhrif á álver við Húsavík

Tillögur orkuauðlindanefndar, um að veiting nýrra rannsóknarleyfa verði takmörkuð næstu árin, gætu haft áhrif á orkuöflun vegna álvers við Húsavík. Tillögurnar virðast hins vegar ekki trufla áform um álver í Helguvík.

Nefnd á vegum iðnaðarráðherra, sem í sátu fulltrúar þingflokka og orkufyrirtækja, leggur til að Alþingi ákveði innan fjögurra ára hvar á landinu megi virkja og hvaða landsvæði eigi að vernda. Fram til þess tíma verði veiting nýrra leyfa til rannsókna og nýtingar orkulinda takmörkuð samkvæmt ákveðinni skilgreiningu.

Tillögur nefndarinnar þýða meðal annars að Hitaveita Suðurnesja fær ekki rannsóknarleyfi fyrir Brennisteinsfjöll austan Kleifarvatns. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, segir þetta ekki trufla áform um álver í Helguvík þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir að virkja í Brennisteinsfjöllum vegna fyrsta áfanga álversins. Vegna síðari áfanga hafi menn hins vegar horft til þess svæðis.

Virkjanir þær á Suðurlandi sem Landsvirkjun áformar að reisa vegna stækkunar í Straumsvík eru á grænu ljósi.

Meiri óvissa ríkir hins vegar um orkuöflun vegna álvers við Húsavík. Ástæðan er sú að Gjástykki, ofan Kröfluvirkjunar, lenti í þeim flokki sem nefndin telur að ekki eigi að heimila að rannsaka. Landsvirkjunarmenn telja hins vegar of snemmt að meta hvort þetta hafi áhrif á álver við Húsavík þar sem ekki er vitað hvort önnur jarðhitasvæði sem verða rannsökuð í Þingeyjarsýslum geti skilað nægilegri orku. Fulltrúi Landsvirkjunar lýsti í sérstakri bókun þeirri skoðun að heimila beri rannsóknir í Gjástykki enda hafi umsagnaraðilar, bæði sveitarstjórnir og opinberar stofnanir, þegar samþykkt þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×