Matarverð lækkar um 16% 9. október 2006 11:07
Vörugjald af innlendri og innfluttri matvöru, nema sykri og sætindum, verður afnumið frá 1. mars. Virðisaukaskattur af matvælum lækkar líka úr 14% í 7% frá 1. mars. Virðisaukaskattur af annarri þjónustu og vörum í 14% þrepi, bókum, tímaritum, blöðum, húshitun og hótelgistingu, verður lækkaður í 7%. Virðisaukaskattur af öðrum matvælum sem hefur verið 24,5% verður lækkaður í 7% frá sama tíma og virðisaukaskattur af veitingaþjónustu fer líka niður í 7%. Almennir innflutningstollar af kjötvöru munu lækka um allt að 40%. Samhliða þessu verður áfram unnið að frekari gagnkvæmum tollalækkunum og bættum markaðsaðgangi gagnvart helstu viðskiptalöndum Íslands í milliríkjasamningum sem tryggja jafnframt útflutningshagsmuni íslensks atvinnulífs, að því er fram kom í máli Geirs Haarde, forsætisráðherra kynnti ásamt samráðherrum á fréttamannafundi fyrir hádegið. Þá var tilkynnt, að Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hefðu ákveðið raunlækkun á heildsöluverði mjólkurvara á næstu 12 mánuðum sem verði náð með óbreyttu verði á þessum tíma, hinu sama og ákveðið var af verðlagsnefnd búvöru þann 1. janúar 2006. Áætlað er að þessar aðgerðir geti leitt til tæplega 16% lækkunar matvælaverðs og 2,3% lækkunar neysluverðsvísitölu á næsta ári. Auk þess mun ákvörðun um að lækka virðisaukaskatt á öðrum vörum og þjónustu úr 14% í 7% (bækur, hótelgisting, húshitun o.fl.) leiða til um 0,4% lækkunar í viðbót þannig að heildaráhrif þessara aðgerða eru metin til 2,7% lækkunar neysluverðsvísitölu á næsta ári. Kaupmáttur heimilanna eykst að sama skapi. Áhrif þessara aðgerða á afkomu ríkissjóðs eru metin á um 7 milljarða króna m.v. heilt ár og tæplega 6 milljarða árið 2007, segir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðirnar. Þá segir, að með þessum lækkunum verði matvælaverð á Íslandi orðið sambærilegt við meðalverð á matvælum á Norðurlöndunum miðað við upplýsingar um matvælaverð frá Evrópsku hagstofunni (Eurostat), og að verðlagseftirlit almennings er mjög mikilvægt til að tryggja framgang þeirra kjarabóta sem ríkisstjórnin hefur nú ákveðið. "Miklu skiptir að ekki verði hækkanir á almennu matvöruverði á næstu mánuðum þangað til ákvarðanir ríkisstjórnarinnar koma til framkvæmda. Viðskiptaráðherra mun af því tilefni mælast til þess við Neytendastofu og verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands að fylgjast mjög náið með verðlagi í smásöluverslunum á næstu mánuðum og misserum. Sömuleiðis mun viðskiptaráðherra mælast til þess við Samkeppniseftirlitið að það fylgist vel með þróun samkeppnisaðstæðna á smásölumarkaði með matvöru," segir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Reykjavík 9. október "Allir kokkar í eldhúsum Íslands munu gleðjast" sagði Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra á fréttamannafundinum. Með forsætisráðherra á fundinum voru líka ráðherrarnir Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra og Árni M. Mattiessen, fjármálaráðherra.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira