"Nokkrir ansi ósáttir" - prófkjör Framsóknarmanna í norðvestur 23. september 2006 20:00 Kristinn H. Gunnarsson hefur setið á þingi frá árinu 1991. MYND/Gunnar V. Andrésson
Framboðslisti Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi verður ákveðinn með póstkosnu prófkjöri, þvert á tillögu stjórnar kjördæmasambandsins sem vildi stilla upp á lista. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknar, segir afar fátítt að tillaga stjórnar kjördæmisráðs hljóti ekki brautargengi og segir það endurspegla miklar áhyggjur af stöðu flokksins. "Nokkrir eru ansi ósáttir við að verða undir en þetta er niðurstaðan og henni una allir. En þetta kom á óvart," segir Kristinn, sem sjálfur sækist eftir fyrsta sæti á framboðslistanum í vor. Hann hafði sjálfur látið þau orð falla að hann kysi frekar prófkjör en uppstillingu en tillagan kom hins vegar formlega frá Framsóknarfélögunum í Bolungarvík og í Dalasýslu. Hún fékk einnig stuðning víðar í kjördæminu. Kristinn segir að prófkjör sé leið flokksins til að höfða til flokksmanna og hleypa þeim að ákvarðanatöku innan flokksins. Hann segir einnig að fyrir síðustu Alþingiskosningar hafi verið stillt upp á listann og kosningaúrslitin hafi verið vonbrigði. Þá hafi flokkurinn fengið tvo þingmenn en ekki þrjá eins og vonast hafi verið til. Þrír frambjóðendur óska eftir fyrsta sætinu: Kristinn H. Gunnarsson, Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Herdís Sæmundardóttir sem sækist eftir 1.-2. sæti. Kristinn segist hins vegar ekkert smeykur við samkeppnina, nú velji fólkið þann sem að því þyki bestur.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira