Hæstiréttur staðfestir sýknudóm á 365 prentmiðla 1. júní 2006 16:51
Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Jónínu Benediktsdóttur á hendur 365 prentmiðlum og Kára Jónassyni, ritstjóra Fréttablaðsins, vegna tölvupósta í tengslum við upphaf Baugsmálsins. Jónína Benediktsdóttir fékk sett lögbann á flutning Fréttablaðsins sem byggðist á tölvupósti hennar í tengslum við Baugsmálið og fór fulltrúi sýslumanns á ritstjórnarskrifstofu blaðsins og lagði hald á gögn. Jónína krafðist þess að lögbannið sem og haldlagning gagnanna yrði staðfest fyrir dómi og að ritstjóri blaðsins yrði látin sæta ítrustu ábyrgð og greiddi 5 milljónir króna í bætur. Héraðsdómur vísaði bótakröfunni frá dómi og synjaði kröfunum vegna lögbannsins. Hún áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en þar féll hún frá kröfum um refsingu yfir Kára Jónassyni í málinu með vísan til laga um bann við að hnýsast í gögn sem séu einkamál. Kári var þó áfram inni í málinu vegna ábyrgðar sinnar sem ritstjóri og ábyrgðarmaður. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að krafa Jónínu um lögbann væri í senn of víðtæk og óákveðin til þess að taka mætti hana til greina og því var henni hafnað. Kári Jónasson var jafnframt sýknaður. Fallist var að skrif Fréttablaðsins um fjárhagsleg málefni Jónínu hefðu lotið að lögum um einkamál svo og skrif blaðsins um hvatningar Jónínu og annarra í ráðagerðum um að kæra Baugsmenn. Hins vegar var litið til þess að skrif Fréttablaðsins hefðu haft að geyma efni sem ætti erindi við almenning og þótt jafnframt hefði verið greint frá fjárhagsmálefnum Jónínu var talið að þau væru svo samfléttuð fréttaefninu í heild að ekki yrði greint á milli. Því hefði ekki verið gengið nær einkalífi Jónínu en óhjákvæmilegt væri í opinberri umræðu um málefni sem varðaði almenning. Var því héraðsdómur látinn óraskaður.
Fréttir Innlent Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira