Leggur áherslu á nýtingu jarðhita 12. maí 2006 16:40
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra lagði áherslu á aðkomu alþjóðlegra fjármálastofnana að nýtingu jarðhita á fundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í New York í gær. Í ræðu sinni sagði ráðherra að fólk væri almennt ekki nógu meðvitað um möguleika jarðhita sem orkugjafa. Ráðherra sagði að jarðhiti gæti leyst orkuþörf hundruða milljóna manna í Austur-Afríku, Mið-Ameríku, Kína, Indónesíu og víðar á loftslagsvænan hátt, þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Umhverfisráðuneytinu. Umhverfisráðherra sagði meðal annars: „Ég legg áherslu á leiðtogahlutverk alþjóðlegra fjármálastofnana í þessu sambandi. Milljörðum dala verður fjárfest í orkukerfið á næstu árum og þessar fjárfestingar munu hafa áhrif á umhverfið í marga áratugi. Hluti þessarar fjárfestingar fer líklega í jarðefnaeldsneytisknúnar orkuvinnslur á svæðum þar sem nóg er af orku frá jarðhita, en hún er ekki nýtt vegna skorts á tækniþekkingu og fjármagni. Í skýrslu Kofi Annans aðalritara kemur fram að fjárfestingarkostnaður, erfiðleikar við að meta jarðvarmaauðlindir og ónóg staðbundin tækniþekking séu meðal helstu hindrana við nýtingu orku frá jarðhita. Ég hvet alþjóðlegar fjármálastofnanir til að hjálpa við að ryðja þessum hindrunum úr vegi og að huga sérstaklega að efnahagslegum ávinningi þessarar orkulindar til langs tíma." Ofangreindum fundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem haldinn er í höfuðstöðvum samtakanna í New York, lýkur í dag.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira