Kópavogur tilnefnir heiðurslistamann 11. maí 2006 17:35 Erna t.h. ásamt Margréti Söru Gunnarsdóttur. Mynd/Stefán
Erna Ómarsdóttir dansari og danshöfundur var nú rétt í þessu útnefnd heiðurslistamaður Kópavogs. Erna er yngsti listamaðurinn sem hlotið hefur þennan heiður í Kópavogi, en hún þykir hafa náð langt í listsköpun sinni og verið landi og þjóð til sóma. Erna er 34 ára gömul og uppalin í Kópavoginum þar sem hún hóf dansnám sitt. Hún hefur verið tilnefnd og unnið til fjölda verðlauna fyrir list sína á undanförnum árum og víða vakið athygli. Erna var til að mynda tilnefnd til Benoit dansverðlaunanna í Moskvu 2002 og sama ár var hún valin sem einn besti ungi dansarinn af Ballet International. Árið 2003 var hún valin einn besti dansarinn sem og einn þeirra ungu danshöfunda sem vert er að fylgjast með. Árið 1996 stofnaði Erna ásamt þremur öðrum dönsurum Dansleikhús með Ekka í Reykjavík og hefur hún dansað og samið mörg verk fyrir hópinn. Erna blandar gjarnar saman listgreinum og er meðal annars meðlimur í fjöllistahópnum PONI sem starfar í Belgíu. Hún hefur einnig skapað verk í samstarfi við Jóhann Jóhannsson, Gabríelu Friðriksdóttur og Margréti Söru Gunnarsdóttur. Erna samdi auk þess dansleikhúsverkið Við erum öll Marlene Dietrich FOR, ásamt leikstjóranum Emil Hrvatin, en sýningin hefur fengið mikið lof gagnrýnenda. Sýningin verður sýnd á Listátíð Reykjavíkur 15. 16. og 17 maí n.k.
Fréttir Innlent Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Sjá meira