Innlent

Samningur Ríkiskaupa við Shell og Esso framlengdur

MYND/GVA

Ríkiskaup hafa ákveðið að framlengja samning sinn við Shell og ESSO um kaup á eldsneyti, olíu og öðrum rekstrarvörum fyrir ökutæki og vélar ríkisins. Að sögn Júlíusar Ólafssonar, forstjóra Ríkiskaupa, var sú ákvörðun tekin í gær, en um er að ræða seinna framlengingarár á samningi við olíufélaganna frá árinu 2003 sem gerður var eftir útboð. Forsvarsmenn Atlantsolíu leituðu eftir viðræðum við Ríkiskaup um útboð í ár vegna eldsneytiskaupa ríkins en sögðu forstjóra Ríkiskaupa hafa sagt að málið kæmi þeim ekki við. Júlíus segist ekki hafa séð ástæðu til viðræðna um málið þar sem menn væru ánægðir með þá samninga sem nú væru í gildi. Útboð yrði haldið snemma næsta árs og þar gæti Atlantsolía verið með. Þá séu forsvarsmenn Ríkiskaupa tilbúnir að ræða við Atlantsolíu hvenær sem er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×