Farið að tilmælum umboðsmanns í langflestum tilvikum 28. mars 2006 12:19 MYND/Pjetur
Farið hefur verið að tilmælum Umboðsmanns Alþingis í langflestum tilvikum innan stjórnsýslunnar. Þetta sýna tölur í skýrslum Umboðsmanns Alþingis undanfarin ár. Deilt hefur verið um það síðustu daga hvort stjórnvöld fari eftir þeim tilmælum sem umboðsmaður Alþingis beinir til þeirra. Deilan spratt vegna ráðningar ráðuneytisstjóra til félagsmálaráðuneytisins í ágúst 2004, en umboðsmaður Alþingis segir að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð Árna Magnússonar þegar hann réð í starfið. Forsætisráðherra lýsti því yfir eftir það að hann teldi að það væru ráðherrarnir sem þyrftu að endingu að ráða því hverjir tækju við starfi ráðuneytisstjóra. En fara stjórnvöld að tilmælum umboðsmanns? Ef rýnt er í ársskýrslur umboðsmannsins, sem hann skilar Alþingi á hverju ári, kemur í ljós að hann kannar hvort farið hefur verið að tilmælum hans. Í ljós kemur að á árunum 2002-2004 sendi umboðsmaður frá sér 66 álit með sérstökum tilmælum en þar er átt við tilmæli um að stjórnvald endurskoði tiltekna ákvörðun. Í 44 þeirra var að mati umboðsmanns farið að tilmælum, í 16 tilvikum var ekki leitað aftur til stjórnvalds vegna þess máls sem fjallað var um og í þremur tilvikum var ekki farið að tilmælum umboðsmanns, þar af tvisvar í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Þegar horft er til almennra tilmæla frá Umboðsmanni Alþingis, sem eru tilmæli um hvernig haga beri sambærilegum málum og þeim sem kvartað er um í framtíðinni, metur hann það svo að farið hafi verið að þeim í þeim 57 tilmælum sem umræði. Samtals hafa því stjórnvöld farið tilmælum umboðsmanns í 101 máli af 124 eða í ríflega áttatíu prósentum tilvika en ekki gert það í þremur prósentum tilvika á árunum 2002-2004.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Fleiri fréttir Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann Sjá meira