Margt bogið við kvótaúthlutanir í Sandgerði 16. mars 2006 23:00 MYND/Vísir
Smábátaeiganda í Sandgerði finnst margt bogið við kvótaúthlutanir bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjóri vísar öllum ásökunum á bug. Sigurgeir Jónsson skrifaði opið bréf fyrir hönd eignarhaldsfélagsins Hvítings ehf. til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar og birtist það á vef Víkurfrétta í gær. Þar segir Sigurgeir meðal annars að hann hafi, einu sinni sem oftar, sótt um kvóta fyrir þetta fiskveiðiár og á dögunum hafi hann fengið sent svarbréf sem undirritað var af bæjarstjóra. Þar standi að Sighvatur eigi að greiða 1.350 þúsund krónur fyrir 17. mars. Sighvatur segir að hann hafi einnig fengið boð um þetta undanfarin ár, sem hann hafnaði fyrstu tvö árin, upphæð upp á 220 þúsund krónur, en í fyrra var upphæðin 300 þúsund krónur sem hann borgaði. Hann fékk hins vegar aldrei kvótann, og enga nótu, og ekki heldur endurgreiðslu sem hann fór fram á sl. sumar. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, segir að ekkert bæjarfélag hafi farið eins illa út úr kvótatilflutningi og Sandgerði, og byggðakvótinn hafi minnkað úr tólf þúsund tonnum í aðeins 400 tonn. Á sameiginlegum fundi bæjarstjórnar og allra útgerðaraðila eftir breytinguna hafi verið samið um að fara nýjar leiðir og úr varð svokallaður „samstarfssamningur", sem Sigurður segir alla sátta við, nema Sigurgeir. Og bæjarstjórinn vísar því á bug að menn fái ekki nótu fyrir greiðslu kvótans. Það fái allir sem séu í samstarfinu kvittun frá bankanum um innlögnina. Svo þegar allt dæmið sé gert upp fái allir „venjulegan" ársreikning fyrir sinni „þátttöku". Hann þvertekur því fyrir að það sé nokkuð óeðlilegt við úthlutun kvótans.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Sjá meira