Norræn samkeppni í stað samvinnu 16. mars 2006 23:45
Norræn samvinna vék fyrir norrænni samkeppni í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld þar sem Magnus Carlsen tryggði sér sigur á Glitnismótinu í hraðskák. Norska undrabarnið lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum. Það var rafmagnað andrúmsloft í Ráðhúsinu þegar Jóhann Hlífar og Magnus gengu til úrslitaviðureignarinnar á Glitnismótinu í skák. Báðir höfðu þeir lagt hvern skáksnillinginn af öðrum á leið sinni í úrslit. Hannes Hlífar vann Tatíönu Vasilevich í fjórðungsúrslitum og Emil Sutovsky í undanúrslitum en Magnús Carlsen lagði Ísraelann Sergey Erenburg í fjórðungsúrslitum og gerði sér svo lítið fyrir og skellti Vishy Anand, heimsmeistara í hraðskák í undanúrslitum. Í hraðskák hafa menn fimm mínútur til að gera út af við andstæðinginn en Carlsen þurfti ekki nema helming þess tíma til að vinna fyrstu skákina við Hannes Hlífar en seinni skákin var mjög spennandi þar sem bæði Hannes og Magnus voru við það að renna út á tíma. Svo fór að tími Hannesar rann út á undan og Magnus því sigurvegari á Glitnismótinu. Saga Magnusar Carlsen er ótrúleg. Hann varð fyrir rúmum tveimur árum yngsti stórmeistari sögunnar, þá aðeins þrettán ára gamall, en hann er nú í 89. sæti á lista Alþjóðaskáksambandsins yfir sterkustu skákmenn heims. Þess má til gamans geta að fyrir tveimur árum. 17. mars 2004, sigraði Magnus ekki ómerkari mann en Anatólí Karpov, fyrrverandi heimsmeistara í skák, í undanrásum hraðskákmóts hér á landi en varð svo að játa sig sigraðan í næstu umferð þar sem hann mætti heimsmeistaranum Garry Kasparov.
Fréttir Innlent Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Erlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Erlent Fleiri fréttir Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Sjá meira