Innlent

Dóms að vænta í Baugsmálinu

Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan korter í þrjú í dag. Um er að ræða átta ákæruliði um brot sem vógu ekki þungt í meintu heildarbroti 40 ákæruliða. 32 ákæruliðum var vísað frá og eru enn í rannsókn setts saksóknara sem leggur mat á það innan tíðar hvort ákært verði í þeim að nýju og gæti niðurstaðan í dag haft áhrif á það. NFS mun sýna beint frá héraðsdómi í dag og hefst útsendingin skömmu áður en dómurinn verður kveðinn upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×