Kanna þarf áhrif á fuglalíf vegna efnistöku úr Ingólfsfjalli 14. mars 2006 13:18
Kanna þarf betur hvaða áhrif efnistaka úr Ingólfsfjalli hafi á fuglalíf, könnun á þessum þætti er á engan hátt fullnægjandi, segir í svari stjórnar Landverndar um frummatsskýrslu sem Fossvélar sendu frá sér í janúar um efnistöku úr fjallinu. Landvernd fagnar því að nú skuli í fyrsta sinn verið fjallað skipulega um umhverfisáhrif af námuvinnslu í Ingólfsfjalli, en efnistaka þar hefur staðið í um 50 ár. Ingólfsfjall er mikilvægt kennileiti á Suðurlandi. Fjallið er áhugaverð jarðmyndun sem er einkennandi fyrir Ísland. Ingólfsfjall hefur menningarsögulegt gildi þar sem það ber nafn fyrsta landsnámsmannsins. Ingólfsfjall er vinsælt til fjallgöngu og er mikilvægt vatnsból. Efnistaka í fjallshlíðum Ingólfsfjalls hefur lengi verið umdeild vegna sjónmengunar og verið til vitnis um þá staðreynd að stjórnvöld skortir úrræði til að ná tökum á þeim umhverfisvanda sem fylgir stjórnlausri efnistöku í gömlum námum. Matsskýrsla staðfestir það sem sagt hefur verið um víðtæk og neikvæð sjónræn áhrif efnistök á þessu svæði. Í niðurstöðu matsins segir að sýnileiki námusvæðisins á Ingólfsfjalli muni verða mikill og ekki sé mögulegt að dylja þau landlagsspjöll sem felast í því að mynda um 80 m djúpa hvilft í fjallsbrúnina. Þessi miklu landslagslýti verða sýnileg frá fjölmennum þéttbýlisstað og hringveginum. Að mati stjórnar Landverndar er þetta eitt fullgild ástæða til hafna alfarið áformaðri framkvæmd, hvort sem litið er til valkosts 1 eða 2. Stjórn Landverndar gerir athugasemdir við þann hluta skýrslunnar sem fjallar um áhrif framkvæmda á fuglalíf. Í skýrslunni segir að rykmengun sé talin hafa lítil sem engin áhrif á fuglalíf, miðað við annað rask sem fylgir námuvinnslunni. Þá er jafnframt fullyrt að kanna þurfi fuglalíf nánar á varptíma til að finna út hvaða fuglategundir verði fyrir áhrifum frá stækkaðri námu. Könnun á þessum þætti málsins er því á engan hátt fullnægjandi.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira