Afli íslenskra fiskiskipa dregst saman 14. mars 2006 09:39
Afli íslenskra fiskiskipa hefur dregist saman um tæplega fjörutíu prósent á yfirstandandi fiskveiðiári miðað við síðasta ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fiskistofu í tilefni þess að í lok febrúar var fiskveiðiárið hálfnað. Heildaraflinn var þá kominn í tæplega fimm hundruð og áttatíu þúsund tonn en á sama tíma á síðastliðnu fiskveiðiári var aflinn ríflega níu hundruð og sextíu þúsund tonn, eða um fjörutíu prósentum meiri. Þar vegur þyngst minni afli uppsjávartegunda en afli loðnu og kolmunna á þessu fiskveiðiári er rúmlega þrjú hundruð og sjötíu þúsund tonnum minni en hann var á sama tíma í fyrra. Botnfiskaflinn er líka minni núna, og rækjuveiðar á Íslandsmiðum virðast hafa lagst af, að minnsta kosti í bili. Heildaraflinn í febrúar síðastliðnum var um tvö hundruð og fjórtán þúsund tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það er tæplega áttatíu og sjö þúsund tonnum minni afli en í febrúar í fyrra og er skýringuna að finna í minni loðnuafla. Fiskveiðiárið er frá fyrsta september til 31. ágúst. Heildaraflamarkið fyrir þetta ár er tæplega þrjú hundruð níutíu og fimm þúsund tonn og voru eftirstöðvar í lok febrúar hundrað áttatíu og sjö þúsund tonn. Það eru talsvert minni eftirstöðvar en á sama tíma í fyrra, en þess ber að geta að aflamarkið á síðasta fiskveiðiári var um þrjátíu og fimm þúsund tonnum hærra en í ár.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira