Deilt um eignarrétt á vatni 10. mars 2006 18:25
Hver á vatnið? Það er spurning sem skekur Alþingi og veldur því að kalla þarf þing til fundar á morgun, laugardag. Ekki sér fyrir endan á málinu sem nú er til annarrar umræðu á Alþingi. Tveir þingmenn komust að í ræðustól í dag, en 15 eru enn á mælendaskrá og hefst fundur klukkan 11 í fyrramálið og búist við að hann standi lengi. En hvað er það sem veldur því að þetta mál veldur svona miklum titringi í sölum Alþingis? Það snýst að mestu um tvennt. Annað þeirra er eignarrétturinn. Í vatnalögum sem Alþingi samþykkti árið 1923 eftir miklar umræður, segir að landareign hverri fylgi réttur til umráða og hagnýtingar á því vatni, straumvatni eða stöðuvatni sem á henni er, á þann hátt sem lögin heimila. Í frumvarpinu sem nú er tekist á um segir hins vegar að fasteign hverri, þar með talið þjóðlendu, fylgi eignarréttur að því vatni sem á henni eða undir henni er eða um hana rennur. Hitt atriðið lýtur svo að heildarskoðun þessarra mála sem stjórnarandstaðan telur heppilegri aðferð, en enn er beðið laga um vatnsvernd, beðið er niðurstöðu nefndar um hvernig staðið verður að rannsóknarleyfum á vatni og fleira mætti telja. Magnús Þór Hafsteinsson Frjálslynda flokksnu segist fyrr dauður liggja en samþykkja eignarrétt á vatni.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira