Mótmæltu kvöldfundi um vatnalög 8. mars 2006 18:05 Stjórnarandstæðingar mótmæltu því að frumvarp til vatnalaga væri tekið fyrirvaralítið til umræðu á sérstökum kvöldfundi.
Stjórnarandstæðingar mótmæltu því við upphaf þingfundar klukkan sex að haldinn væri kvöldfundur til að fjalla um vatnalög, eitt umdeildasta frumvarpið sem liggur fyrir Alþingi. Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að á fundi þingforseta sem formönnum þingflokka í byrjun vikunnar hefði verið ákveðið að hafa einn kvöldfund þessa vikuna. Sá kvöldfundur hefði verið í gærkvöldi og því hefðu þingmenn talið sér óhætt að ráðstafa sér í annað í kvöld. Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, sagði þingmenn flokksins hafa lofað sér á fund með borgarmálaframboði Frjálslynda flokksins í kvöld. Nú væri það í upphafi. "Það er augljóst að frumvarp ríkisstjórnarinnar um vatnalög er farið að hafa veruleg áhrif á störf þingsins," sagði Ögmundur Jónasson. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lýsti furðu sinn á að í hvert sinn sem deilur risu um þingmál væri boðað til kvöldfunda. Sagði hann að það væri næst því að gripið væri til ofbeldis með að halda stöðugt kvöldfundi um umdeild þingmál. Hann sagði jafnframt að ef það lægi svo mikið á að fjalla um og ganga frá vatnalögum væri það furðulegt að iðnaðarráðherra hefði ekki séð ástæðu til að mæta í þingsal til að fjalla um málið.Eini stjórnarliðinn sem tók til máls, utan forseta Alþingis, var Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði það góða ráðstöfun hjá forseta að boða til kvöldfundar um málið, þá gætu þeir stjórnarandstæðingar sem það vildu rætt málið út í nóttina. Hún sagði mikla umræðu hafa verið um málið síðustu daga en afar litla efnislega umræðu og þá aðeins frá Sigurði Kára Kristjánssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira