Erlend matsfyrirtæki gagnrýnd 8. mars 2006 12:45 MYND/Vilhelm Gunnarsson
Greiningardeild Merrill Lynch, eins stærsta verðbréfafyrirtækis í heimi, gagnrýnir erlend matsfyrirtæki og segir að þau hefðu átt að gefa íslensku bönkunum lakara lánshæfismat en þau hafa gefið þeim. 36 síðna skýrsla Merrill Lynch um íslensku viðskiptabankanna var birt í gær. Hún ber titilinn Icelandic Banks og undirfyrirsögnina "Not What You Are Thinking". Þar segir skýrsluhöfundur að óvíst sé með mjúka lendingu í íslensku efnahagslífi. Einnig sé mikið af skuldum bankanna til skamms tíma og því séu þeir sérlega viðkvæmir fyrir því ef tiltrú á markaðinn breytist. Það er mat skýrsluhöfunda að skuldir bankanna nemi rúmum tólf hundruð milljörðum króna. Í skýrslunni segir einnig að eignarhald íslensku viðskiptabankanna og fyrirtækja valda áhyggjum. Svo virðist sem bankarnir taki oft áhættu í fjárfestingum í samfloti með stjórnendum og viðskiptavinum og taki þar ekki tillit til hófsamrar eiginfjárstöðu sinnar. Auk þess fari þeir oft fyrir viðskiptum sem þessum. Það er mat Merrill Lynch að matsfyrirtækin Fitch Ratings og Moody´s hafi ekki tekið nægilegt tillit til kerfislægrar áhættu á íslenskum fjármálamarkaði þegar þau hafa gefið íslensku viðskiptabönkunum lánshæfismat. Markaðurinn telji lánshæfismat bankanna vera BBB en matsfyrirtækin hafi gefið þeim A í einkunn. BBB sé sú einkunn sem matsfyrirtækið Standard og Poor´s myndi gefa íslensku bönkunum nú. Gagnrýni á starfsemi íslensku viðskiptabankanna hefur verið nokkur síðustu misseri. Það var í nóvember í fyrra sem Royal Bank of Scotland sagði KB-banka taka óþarfa áhættu auk þess sem og spurningar hefðu vaknað um fjármögnun og eignatengsl. KB-banki gerði ýmsar athugsemdir við greininguna og var þá send út ný greining þar sem töluvert var dregið í land. Á sama tíma gaf Fitch Ratings KB-banka hæstu einkunn og sagði horfur í rekstri hans stöðugar. Fyrir nokkrum vikum greindu svo greiningarfyrirtæki Barclays Capital og Credit Sights frá því að þau teldu það veikan blett á íslenskum bönkum hve mjög þeir reiði sig á erlent lánsfé og hversu óvenjulega náin og óheilbrigð eignatengsl fjárfesta og fyrirtækja séu hér á landi. Síðla í síðasta mánuði greindi svo matsfyrirtækið Fitch Ratings frá því að horfur fyrir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands vegna skuldbindinga í innlendri og erlendri mynt hefði breyst úr því að vera stöðugar í neikvæðar. Það breytti þó ekki lánshæfismati bankanna. Gengi bréfa í íslensku viðskiptabönkunum þremur lækkaði í morgun. Landsbankinn hefur lækkað um tæp 3,5%, Íslandsbanki um tæp 3% og KB banki um rúm 2,5%.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira