Ekkert tjón af völdum jarðskjálftans 6. mars 2006 19:08
Snarpur jarðskjálfti, 4,6 á Richter, varð austur af Krísuvík um klukkan hálf þrjú í dag. Jarðskjálftinn varð á mjög virku svæði, um 3 kílómetra austur af Kleifarvatni eða um 7,7 kílómetra austnorðaustur af Krísuvík, á rúmlega sjö kílómetra dýpi. Nokkuð af eftirskjálftum hefur fylgt í kjölfarið. Svæðið á Reykjanesinu þar sem skjálftinn varð í dag, er eitt af allra virkustu jarðskjálftasvæðum landsins. Svæðið er sérstakt að því leiti að þar eru bæði gosbelti og flekaskil. Norður-Ameríku og Evrasíuflekinn mætast þarna og Ísland gliðnar að meðaltali á flekamótunum um einn sentimetra á ári. Gliðnunin verður hins vegar í stærri stökkum, með tilheyrandi jarðskjálftavirkni. Ekki er hægt að leggja neitt út af jarðskjálftanum í dag um hugsanlegar jarðhræringar á svæðinu, né hinu að varðskjálfti af svipaðri stærð varð norður undan landinu í gær í hafinu nálægt Grímsey. Jarðskjálftar eru enda algegnir á báðum þessum stöðum. Á Reykjanesinu verða þeir hins vegar aldrei mjög stórir, fara sjaldan yfir fimm á Richter, þótt söguleg dæmi séu um stærri skjálfta. Um 1930 varð til dæmis skjáfti við Kleifarvatn sem var vel yfir sex á Richter. Jarðskjálftinn í dag fannst víða um suðvestanvert landið. Vel á öllu höfuðborgarsvæðinu, upp í Hvalfjörð og allt austur á Hvolsvöll. Hvorki er þó vitað um tjón á mannvirkjum né fólki.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira