Þriggja ára fangelsi fyrir að afneita helförinni 20. febrúar 2006 20:45
Enn er tekist á um hvar mörk tjáningarfrelsisins liggja, að þessu sinni í réttarsal í Vínarborg í dag. Þar viðurkenndi breski sagnfræðingurinn David Irving að hafa afneitað helförinni gegn gyðingum. Fyrir vikið var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi. Irving var handtekinn í nóvember á síðasta ári en ummælin sem dómstóllinn í Vín fjallar nú um lét hann falla í fyrirlestrarferð um Austurríki fyrir sextán árum. Þá sagði hann að allar frásagnir um helförina gegn gyðingum væru mjög ýktar, gasklefarnir í Auswitch hefðu ekki verið til og að Adolf Hitler hefði ekki haft hugmynd um að gyðingar hefðu orðið fyrir ofsóknum á heimsstyrjaldarárunum. Við réttarhöldin í dag viðurkenndi Irving fúslega að hafa haldið þessu fram en jafnframt sagðist hann hafa séð ný gögn á síðustu árum sem fullvissuðu hann um að milljónir gyðinga hefðu verið drepnar á kerfisbundinn hátt. Þrátt fyrir það var engan iðrunartón að finna hjá Irving. Hann sagði fáranlegt að réttað væri yfir honum vegna skoðana sem hann hefði látið í ljós fyrir 16 árum sem sagnfræðingur og að sömuleiðis væri fáránlegt að yfirvöld í Austurríki gripu til þessa ráðs til að þykjast vera ekki nasistaríki. Það er sérstök tilviljun að réttarhöldin yfir Irving skuli fara fram á svipuðum tíma og allt logar í ófriði vegna Múhameðsmyndanna svonefndu en þeir sem stutt hafa birtingu myndanna gera það einmitt í nafni tjáningarfrelsisins. Í þessu máli ákvað hins vegar dómstóllinn í Vín að tjáningarfrelsinu yrði að setja einhverjar skorður því fyrir ummælin umdeildu var Irving dæmdur í þriggja ára langt fangelsi.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Fleiri fréttir „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Sjá meira