Erlent

Fuglaflensan komin til Austurríkis og Þýskalands

Svanir á Ítalíu.
Svanir á Ítalíu. MYND/AP

Fuglaflensa hefur nú í fyrsta sinn greinst í hjarta Evrópu. Rannsóknir hafa leitt í ljós að flensan hefur drepið villta svani bæði í Austurríki og Þýskalandi.

Flensan hafði áður greinst í níu löndum í Evrópu, í Búlgaríu, Grikklandi, Ítalíu, Króatíu, á Kýpur, í Rúmeníu, Rússlandi, Tyrklandi og Úkraínu. Það var svo í dag sem flensan greindist í tveimur villtum svönum í Austurríki og tveimur til viðbótar í Þýskalandi.

Það var um síðustu helgi sem í ljós koma að sex villtir svanir á Sikiley höfðu drepist úr H5N1 afbrigði flensunnar og hefur sala á fuglakjöti þar í landi þegar dregist saman um helming.

Grikkir staðfestu svo í gær að flensan hefði greinst í fjórum villtum fuglum þar í landi.

Hollendingar tilkynntu í síðustu viku að þeim sem reki alífuglabú yrði fyrirskipað að halda fuglum sínum innandyra frá mars til að forða þeim frá sýkingu þegar farfuglar fara að koma til landsins. Þjóðverjar hafa ákveðið að grípa til sama ráðs.

Evrópusambandið hefur ákveðið að banna innflutning á ómeðhöndluðu fiðri til að draga úr hættu á smiti.

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin í Genf í Sviss hefur staðfest að H5N1 afbrigði flensunar hafi greinst í mönnum í Kambódíu, Kína, Indónesíu, Írak, á Tælandi, í Tyrklandi og Víetnam.

Alls hafa 169 tilfelli greinst í þessum löndum og þar af hefur 91 látist af völdum sjúkdómsisns. Flestir hafa dáið í Víetnam, þar sem flest tilfelli hafa greinst, en aðeins einn hefur greinst sýktur af flensunni í Írak og dró flensan hann til dauða.

Tyrkland er eina landið í Evrópu þar sem flensan hefur greinst í mönnum og þar hefur hún dregið 14 sjúklinga af 22 til bana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×