Fuglaflensan komin til Austurríkis og Þýskalands 14. febrúar 2006 20:54 Svanir á Ítalíu. MYND/AP
Fuglaflensa hefur nú í fyrsta sinn greinst í hjarta Evrópu. Rannsóknir hafa leitt í ljós að flensan hefur drepið villta svani bæði í Austurríki og Þýskalandi. Flensan hafði áður greinst í níu löndum í Evrópu, í Búlgaríu, Grikklandi, Ítalíu, Króatíu, á Kýpur, í Rúmeníu, Rússlandi, Tyrklandi og Úkraínu. Það var svo í dag sem flensan greindist í tveimur villtum svönum í Austurríki og tveimur til viðbótar í Þýskalandi. Það var um síðustu helgi sem í ljós koma að sex villtir svanir á Sikiley höfðu drepist úr H5N1 afbrigði flensunnar og hefur sala á fuglakjöti þar í landi þegar dregist saman um helming. Grikkir staðfestu svo í gær að flensan hefði greinst í fjórum villtum fuglum þar í landi. Hollendingar tilkynntu í síðustu viku að þeim sem reki alífuglabú yrði fyrirskipað að halda fuglum sínum innandyra frá mars til að forða þeim frá sýkingu þegar farfuglar fara að koma til landsins. Þjóðverjar hafa ákveðið að grípa til sama ráðs. Evrópusambandið hefur ákveðið að banna innflutning á ómeðhöndluðu fiðri til að draga úr hættu á smiti. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin í Genf í Sviss hefur staðfest að H5N1 afbrigði flensunar hafi greinst í mönnum í Kambódíu, Kína, Indónesíu, Írak, á Tælandi, í Tyrklandi og Víetnam. Alls hafa 169 tilfelli greinst í þessum löndum og þar af hefur 91 látist af völdum sjúkdómsisns. Flestir hafa dáið í Víetnam, þar sem flest tilfelli hafa greinst, en aðeins einn hefur greinst sýktur af flensunni í Írak og dró flensan hann til dauða. Tyrkland er eina landið í Evrópu þar sem flensan hefur greinst í mönnum og þar hefur hún dregið 14 sjúklinga af 22 til bana.
Erlent Fréttir Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira